LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2–3ja herbergja endaíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Hraunbæ 103 í Reykjavík. Húsið er ætlað félagsmönnum í Félagi eldri borgara, 60 ára og eldri. Innangengt er í félagsmiðstöð sem rekin er á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar þar sem boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf. Þar er meðal annars mötuneyti, setustofa, hárgreiðslustofa og snyrtistofa. Tvær lyftur eru í húsinu og aðgengi gott.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal matvöruverslanir, apótek og heilsugæslu. Sundlaug og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdal eru í næsta nágrenni.
Birt stærð eignarinnar er 88,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Einnig fylgir læstur skápur (geymsluhólf) í sameign á jarðhæð. Eignin er skráð sem 3ja herbergja en búið er að opna rými, stækka stofu og borðstofu sem skapar einstaklega rúmgott og bjart alrými. Í dag er því eitt svefnherbergi í íbúðinni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is
Nánari lýsingForstofa með fataskáp og fatahengi, parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp með frysti sem fylgir, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og rúmgóðu opnu rými með útgengi á austursvalir (voru áður tvö rými), parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og rúmgóðri sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla innan íbúðar með hillum, parket á gólfi.
Húsgjöld eignarinnar eru 31.004 kr. á mánuði og innifela meðal annars almennan rekstur húsfélags, hita, rafmagn í sameign, þrif, húseigendatryggingu, framkvæmdasjóð og þjónustukaup.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.