Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Vel skipulögð og snyrtileg 3ja herbergja, 72,8 fm íbúð á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin býður upp á tvö rúmgóð svefnherbergi, endurnýjað baðherbergi, bjarta stofu með fallegu sjávarútsýni og bílastæði á lóð hússins. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu, útivistarsvæði og alla helstu kosti Vesturbæjarins.
Skipulag: Anddyri, gangur, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, geymsla og sameiginlegt þvottahús.
Nánari lýsing:Anddyri: Sameiginlegur inngangur sem er að mestu leyti eingöngu nýttur af þessari íbúð. Fyrir framan íbúðina er góð forstofa með plássi fyrir yfirhafnir og skó. Þaðan er einnig gengið inn í sameiginlegt þvottahús.
Herbergi 1: Rúmgott með parketi á gólfi, gott skápapláss.
Herbergi 2: Með parketi á gólfi, fataskápur.
Stofa: Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útsýni til sjávar.
Baðherbergi: Smekklega endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir handlaug og upplýstur spegill.
Eldhús : Snyrtilegt eldhús með parketi á gólfi, góðri innréttingu með skápum bæði ofan og neðan borðplötu, flísum við vask og vinnusvæði, helluborði og ofni. Góð aðstaða fyrir borðkrók.
Annað: Viðhald og endurbætur:
Sameign og utanhúss- Lagnir hússins fóðraðar árið 2020.
- Nýir þrýstijafnarar settir upp árið 2021.
- Allir gluggar, útidyrahurð og handrið máluð að utan árið 2023.
- Sameign máluð árið 2019 (samkvæmt upplýsingum seljanda).
- Nýjar hitaveitulagnir á 3. hæð.
- Nýjar hitaveitulagnir í gólfi á 1. hæð árið 2022.
- Nýjar hitaveitulagnir í svefnherbergi á miðhæð árið 2025.
- Viðgerð á útitröppum við inngang 1. hæðar árið 2022.
- Viðgerð á þakrennu árið 2023.
- Tröppur og pallur við inngang steypt upp á nýtt árið 2023.
- Viðgerð á þakdúk undir svefnherbergisglugga á 3. hæð árið 2025.
- Skipt um svefnherbergisglugga á 3. hæð árið 2025.
- Tröppur niður í kjallara lagfærðar árið 2023.
- Suðurgluggi í stofu á 1. hæð lagfærður árið 2022.
Endurbætur á íbúð- Baðherbergi endurnýjað árið 2019.
- Nýtt gólf lagt á eldhús árið 2024.
- Parket lagt í öllum herbergjum eftir endurnýjun hitaveitulagna árið 2022
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.isSjá einnig:fastborg.is/Smelltu hér til að fylgjast með mér á FacebookSmelltu hér til að fylgja mér á InstagramForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.