Fasteignaleitin
Skráð 24. okt. 2026

Reynigrund 15

EinbýlishúsVesturland/Akranes-300
190.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
117.500.000 kr.
Fermetraverð
617.122 kr./m2
Brunabótamat
104.650.000 kr.
Byggt 1978
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
21027571
Húsgerð
Einbýlishús

FastVest og Soffía kynna til sölu 190,4 fm einbýlishús að Reynigrund 15, Akranesi. HÚSIÐ MIKIÐ ENDURNÝJÐ Á SÍÐUSTU ÁRUM 
Fastanúmer 210-2757.

Eignin skiptist í 151,2 fm. íbúðarhúsnæði og 39,2 fm bílskúr.  Húsið er rúmgott og vel skipulagt með fjórum svefnherbergjum, stóru og opnu alrými, þvottaherbergi með sér inngangi og stórum  bílskúr.  Við húsið er góð útiaðstaða, gróinn garður og stór verönd með heitum potti.

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á árunum 2018-2026, meðal annars á lögnum, rafmagni, eldhúsi, baðherbergi, þvottaherbergi, loftum og innréttingum. 


LÝSING EIGNAR:
Forstofa: flísar á gólfi, speglafataskápur.
Forstofuherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með innbyggðri uppþvottavél, bakarofni og örbylgjuofni.  Stór eldunareyja með keramikhelluborði, dúkflísar á gólfi, gólfhiti. 
Stofa, borðstofa og alrými:  Stofa, borðstofa, eldhús og gangur mynda rúmgott og opið alrými.  Loft í stofu, borðstofu og gangi fylgja þakhalla.   
Arinn setur svip sinn á stofuna og úr alrýminu er gengið beint út á stóra verönd  og í garðinn.
Svefnherbergi:  Fjögur svefnherbergi eru í húsinu.  Þrjú þeirra eru staðsett í svefnherbergisálmu, rúmgóð og með góðum fataskápum.  Fjórða herbergið er við forstofu. 
Baðherbergi: Hvít innrétting, innbyggt salerni, sturta með innbyggðum blöndurartækjum.  Flísar á gólfi og veggum, gólfhiti og vifta með rakaskynjara.
Þvottaherbergi:   Innangengt er úr eldhúsi.  Góð innrétting og skápar, gólfhiti og vifta með rakaskynjara.  Sér inngangur er af bílastæð
Gólfefni:  Samfellt parket á þremur herbergjum, stofu, borðstofu og gangi. Flísar á forstofu, þvottaherbergi og baðherbergi.  Dúkflísar á eldhúsi. 
Bílskúr:  Bílskúrinn er 39,2 fm. innréttaður og með epoxy á gólfi. 
í bílskúr er:  Afstúkuð geymsla.  Salerni með sturtu. Geymsluloft. Innrétting með klæliskáp. Tvær göngudyr, annarsvegar út í bakgarð og hinsvegar við hlið bílskúrshurðar. 

ENDURBÆTUR OG VIÐHALD
Á árunum 2018-2026 hafa meðal annars eftirfarandi endurbætur verið gerðar. 
Eldhúsinnrétting og dúkflísar á gólfi .
Loft í alrými; loftun þaks, einangrun, og loftaklæðning  
Rafmagn í alrými, eldhúsi, þvottaherbergi og baðherbergi. 
Inntök fyrir rafmagn, heitt og kalt vatn.
Innréttingar og gólfefni í þvottaherbergi. 
Allar neysluvatnslagnir í húsinu.
Vifta með rakaskynjara fyrir bæði þvottaherbergi og baðherbergi. 
Gólfhiti í eldhúsi, þvottaherbergi og baðherbergi.  Gólfhitakista í þvottahúsi gerir ráð fyrir að geta annað öllum gólffleti hússins. 
Baðherbergi: innbyggt klósett, sturta með innbyggðum blöndurartækjum, innrétting, flísar á gólfi og veggjum. 
Fataskápar í þremur svefnherbergjum og forstofu.
Hurð útá verönd.  
Rafhleðslustöð.
Skolplögn frá húsi að stofnlögn utan lóðar.
Tengi í lagnagrind fyrir gólfhita.
Led útiljós með tímastýringu.
Auk þess hefur húsið fengið gott viðhald að utan.  Hús málað að utan 2020. Þak á húsi endurn. 2007.

LÓÐ OG ÚTIAÐSTAÐA:  Lóðin er skjólgóð, snyrtileg og gróin.  Hellulagt er að aðalinngangi og bílaplanið malbikað.  Við húsið er um 100 fm. verönd með heitum potti.   Á lóðnni er fjölbreyttur gróður, meðal annars jarðarber hindber, stikkilsber, sólber, rifsber og rabarbari  ásamt mörgum fjölærum plöntum.  
Einnig á lóð: um 15 fm. timburskúr og 7,5 fm. gróðurhús.  

EIGNIN hentar vel fjölskyldu sem sækist eftir góðu rými, stórum bílskúr og vel nýttu útisvæði.  Umfangsmiklar endurbætur hafa verið gerðar á síðustu árum, þar á meðal á lögnum, rafmagni og helstu rýmum hússins. 


Nánari upplýsingar veitir Soffía Sóley Magnúsdóttir fasteignasali , í síma 846-4144, soffia@fastvest.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

FastVest með þér alla leið

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
FastVest fasteignamiðlun
http://www.fastvest.is

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háteigur 2
Skoða eignina Háteigur 2
Háteigur 2
300 Akranes
144,1 m2
Einbýlishús
624
544 þ.kr./m2
78.400.000 kr.
Skoða eignina Sæviðarsund 34
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Sæviðarsund 34
Sæviðarsund 34
104 Reykjavík
181,1 m2
Raðhús
623
938 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 20
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Furuvellir 20
Furuvellir 20
221 Hafnarfjörður
187,3 m2
Einbýlishús
413
747 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Krosshamrar 23
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Krosshamrar 23
Krosshamrar 23
112 Reykjavík
198,1 m2
Einbýlishús
624
807 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin