SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*ÍBÚÐIR MEÐ SÉRGARÐI EÐA SÉR ÞAKVERÖND* *FRÁBÆR STAÐSETNING*
*ALLT FYLGIR MEÐ*
Glænýjar og vandaðar 3ja herb. íbúðir vel staðsettar á Villamartin golfparadísarsvæðinu. Hægt er að velja um neðri sérhæð með garði eða efri sérhæð með einkaþaksvölum, íbúðirnar snúa allar til suðurs. Flottar íbúðir með glæsilegum sundlaugargarði og fallegu umhverfi. Sérbílastæði fylgir.
Húsgagnapakki og rafmagnstæki fylgir með eigninni, þannig að hægt er að mæta bara á staðinn og byrja að njóta frá fyrsta degi.
Eignirnar eru tilbúnar til afhendingar strax.
ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.
Nánari lýsing:Komið er inn í rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengi er út í stóran garð frá alrými í íbúðum á neðri hæð, en útgengi út á rúmgóðar svalir og þaðan upp á sér þaksvalir hjá íbúðum á efri hæð.
Í svefnherbergisálmu er góð hjónasvíta ásamt sérbaðherbergi. Útgegni frá hjónasvítu út á góða verönd.
Svefnherbergi og auka baðherbergi.
Neðri hæð er með sér 50-62 fm. verönd.
Efri hæð er með 70 fm. verönd.
Mikið innifalið
Sérmerkt bílastæði inni á lokaðri lóð.
Sérgarður með íbúðum á neðri hæð.
Sér þaksvalir með íbúðum á efri hæð.
Sundlaugargarður með góðri aðstöðu.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Allar íbúðir snúa til suðurs.
Gott útsýni yfir sundlaugargarðinn frá öllum íbúðum.
Raftæki, húsgagnapakki og loftkæling/hitun fylgir með og er innifalið í verðinu, þannig að hægt er að flytja strax inn og byrja að njóta.
Til afhendingar strax.Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað stutt frá nokkrum góðum golfvöllum.
Ca. 10 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig.
Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK
3ja herb. íbúð (tvö svefnherb. + tvö baðherb.), efri eða neðri sér hæð með sér garði eða sér þakverönd: verð frá 249.000 Evrur (ISK36.100.000) + kostn.við kaupin ca. 13%.
ÍBÚÐIRNAR ERU TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR STRAX.
INNIFALIÐ Í VERÐI ERU HÚSGÖGN, RAFMAGNSTÆKI OG HÚSBÚNAÐUR, þannig að hægt er að flytja beint inn.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, garður, bílastæði, svalir, þakverönd, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, air con,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,