Fasteignaleitin
Opið hús:07. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 2. okt. 2026

Eikjuvogur 27

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
113.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
995.591 kr./m2
Fasteignamat
96.100.000 kr.
Brunabótamat
70.850.000 kr.
Byggt 2020
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2507939
Landnúmer
105725
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Viðarpallur
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Einstaklega falleg og vönduð 4ra herbergja neðri sérhæð í nýlegu tvíbýlishúsi í grónu og eftirsóttu hverfi
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 113,4 m² einstaklega fallega og vel skipulagða 4ra herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi við Eikjuvog 27 í Reykjavík. Húsið er byggt árið 2020 og hér sameinast kostir nýlegrar og vandaðrar eignar við einstaka staðsetningu í gróðursælu/gömlu og rótgrónu hverfi.
Íbúðin er björt og vel skipulögð með þremur góðum svefnherbergjum og fallegu opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda hjarta heimilisins. Úr stofu er gengið beint út á sérafnotareit neðri hæðarinnar með viðarpalli, heitum potti og útisnúrum. Eignin er með vönduðum innréttingum, gólfhita og loftræstikerfi.

-  Nýleg og vönduð eign frá 2020 í grónu og eftirsóttu hverfi
-  Þrjú góð svefnherbergi
-  Sérafnotareitur með viðarpalli, heitum potti og útisnúrum
-  Vandaðar innréttingar, gólfhiti og loftræstikerfi


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Íbúðin er skráð 113,4 m² samkvæmt HMS og telst 4ra herbergja. Húsið er byggt árið 2020. Útveggir eru einingasteyptir, einangraðir að utan með steinull og klæddir með lituðu báruáli.
Innréttingar í eldhúsi og fataskápum eru frá GKS, framleiddar af Nobilia í Þýskalandi. Íbúðin er með sjálfstæðu loftræstikerfi þar sem hægt er að stýra loftskiptum og gólfhiti er með Danfoss gólfhitastýringu ásamt forhitara á neysluvatni.
Eignin stendur á sameiginlegri leigulóð og neðri hæðinni fylgir sérafnotareitur með viðarpalli við íbúðina. Góð bílastæði eru við húsið og gert er ráð fyrir bílhleðslu.

Nánari lýsing:
Komið er inn í parketlagt anddyri með fataskápum. Við anddyri er tæplega 4 m² geymsla sem veitir gott geymslupláss innan íbúðar.
Frá anddyri er gengið inn á herbergjagang. Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og tveimur nettenglum í hverju herbergi.
Baðherbergið er vandað og fallega frágengið. Þar er upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa, handlaug á borðplötu með vönduðum blöndunartækjum og góð innrétting. Fallegar flísar eru á gólfi og veggjum, einhalla sturtubotn með glerskilrúmi og innbyggðum blöndunartækjum ásamt handklæðaofni. Á baðherberginu er jafnframt aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda einstaklega fallegt og bjart alrými sem er hjarta íbúðarinnar. Skipulagið nýtir fermetrana sérlega vel og stórir gluggar skapa góða tengingu milli innirýmis og útisvæðis. Úr stofu er gengið beint út á viðarpall og sérafnotareit neðri hæðarinnar.
Eldhúsið er vandað og vel skipulagt með góðri innréttingu, fallegri viðarklæðningu milli efri og neðri skápa og lýsingu undir efri skápum. Keramikhelluborð er á eldunareyju og skápapláss er mjög gott. Innfelld lýsing er í eldhúsi og þar eru veggofn,  keramikhelluborð, háfur, ísskápur og tengi fyrir uppþvottavél.
Parket er á gólfum íbúðarinnar fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.

Sérafnotareitur og garður: Úr alrýminu er gengið beint út á sérafnotareit neðri hæðarinnar með viðarpalli. Þar er heitur pottur og útisnúrur sem skapa notalega útivistaraðstöðu í beinu framhaldi af heimilinu.
Lóðin er falleg og gróin með fullvöxnum trjám og fellur vel að rótgrónu umhverfi hverfisins. Í garðinum er jafnframt útiskúr sem er sameiginlegur með efri hæð.
Bílastæði og aðkoma: Bílastæði og gönguleiðir að íbúðum eru steypt og með snjóbræðslukerfi. Góð bílastæði eru við húsið og gert er ráð fyrir bílhleðslu. Sameiginlegt sorpgerði er við bílastæðin ásamt póstkössum.
Staðsetning og umhverfi: Eikjuvogur er einstaklega vel staðsettur í grónu og eftirsóttu hverfi í Vogunum. Hér sameinast kostir nýlegrar og vandaðrar eignar og rótgróins hverfis með fullvöxnum gróðri og fallegu nærumhverfi.
Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og fjölbreytta þjónustu. Staðsetningin býður því upp á notalegt íbúðarumhverfi með góða tengingu við þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/08/202085.300.000 kr.74.500.000 kr.113.4 m2656.966 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg íbúð 509
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 509
105 Reykjavík
112.3 m2
Fjölbýlishús
312
1023 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 416
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 416
105 Reykjavík
94.3 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 409
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 409
105 Reykjavík
98.1 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 316
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 316
105 Reykjavík
94.1 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin