Miklaborg kynnir: Björt og vel skipulögð þriggja til fjögurra herbergja endaíbúð í mjög vel við höldnu húsi á þessu vinsæla stað í gamla vesturbænum. Suður svalir. Húsið er fallegt og frábærlega staðsett í næsta nágrenni við miðbæ Reykjavíkur.
Frá íbúðinni er stórbrotið og fjölbreytt útsýni yfir borgina og nágrenni hennar. Esjan, Bláfjöll og Reykjanes setja fallegan svip á sjóndeildarhringinn, auk þess sem sjá má Hallgrímskirkju og gömlu höfnina.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 85,2fm en gólfflötur er meiri þar sem íbúðin er að hluta til undir súð.
Í dag er íbúðin með tveimur svefnherbergjum, en með einföldum hætti er hægt að bæta við þriðja svefnherberginu og færa skipulagið þannig aftur í upprunalegt horf.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing.
Gangur/anddyri með góðum fataskápum.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi. Báðar stofur eru bjartar með stórum gluggum. Útgengt út á góðar suður svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð, fataskápur í báðum herbergjum.
Eldhús er með fallegri upprunalegri innréttingu, rúmgóður borðkrókur.
Baðherbergið er með baðkari með sturtuaðstöðu, speglaskáp og innréttingu undir handlaug. Flísar á gólfi og upp að lofti.
Aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu í kjallara. Íbúðinni fylgir einnig sér geymsla í kjallara með glugga. og útgengt þaðan út á lóð með leiktækjum.
Húsið hefur nýlega verið sprunguviðgert og endursteinað ásamt því að gluggar voru endurnýjaðir.
Falleg og vel staðsett íbúð á þessum eftirsótta stað í vesturbænum. Staðsetningin er sérlega hentug, með skóla, leikskóla, heilsugæslu og kaupmanninn á horninu í næsta nágrenni. Þá er miðborg Reykjavíkur í þægilegu göngufæri, með fjölbreyttri þjónustu, veitingastöðum og menningarlífi.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
107 | 64,8 | 61,9 | ||
107 | 69,3 | 69,9 | ||
105 | 85,4 | 51,9 | ||
110 | 109,1 | 114,9 | ||
110 | 98,9 | 97,9 | ||
113 | 79 | 63,9 |