Fasteignaleitin
Skráð 7. júní 2026

Eirhöfði 7B íb.701

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
188.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
220.000.000 kr.
Fermetraverð
1.164.637 kr./m2
Fasteignamat
136.450.000 kr.
Brunabótamat
112.680.000 kr.
Garður
Bílskúr
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534564
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
07
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.

Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.  Heimasíða verkefnisins - smella hér.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman.
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20

Íbúð 0701 er einstaklega glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja þakíbúð á 7. hæð með stórkostlegu útsýni yfir borgina, sundin og til vesturs. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, anddyri, þvottahús, sjónvarpshol, rúmgóðan gang og einstaklega stórt alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu, bílskúr og sérgeymsla.
Hjarta íbúðarinnar er hið rúmgóða 50,8 fm alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og opið samkomurými. Stórir gluggar á tveimur hliðum fylla rýmið af náttúrulegri birtu og skapa fallega tengingu við 34,3 fm þaksvalir sem njóta einhvers besta útsýnis sem völ er á í hverfinu.
Svefnherbergin eru þrjú talsins. Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og aðgengi að sérbaðherbergi. Tvö barnaherbergi eru vel staðsett í sér svefnherbergisálmu ásamt aðalbaðherbergi íbúðarinnar sem er búið baðkari. Auk þess er sérstakt sjónvarpshol sem nýtist vel sem fjölskyldurými, vinnuaðstaða eða leskrókur.
Íbúðin er hönnuð af Rut Kára og einkennist af vönduðum efnisvali og fallegum smáatriðum. Sérsmíðaðar innréttingar frá Voké-III í litaþemanu Dökk eik, Quartz borðplötur, Miele heimilistæki og GROHE blöndunartæki skapa nútímalegt og glæsilegt yfirbragð. Flísalögð baðherbergi, vélræn loftræsting og vandaður frágangur undirstrika gæði eignarinnar.
Um er að ræða einstaka útsýnisíbúð á efstu hæð með stórum þaksvölum, bílskúr, sérmerktu bílastæði og öllu því sem einkennir hágæða heimili á einum eftirsóttasta stað Ártúnshöfða.  Ath. að myndir eru ekki úr íbúðinni sjálfri.

Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.

Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534564
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
24
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.920.000 kr.
Byggt 2025
25.9 m2
Fasteignanúmer
2534564
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
-1
Númer eignar
51
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.460.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tangabryggja 18
Bílastæði
Skoða eignina Tangabryggja 18
Tangabryggja 18
110 Reykjavík
115.8 m2
Fjölbýlishús
422
975 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Arahólar 2
Opið hús:08. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Arahólar 2
Arahólar 2
111 Reykjavík
102.8 m2
Fjölbýlishús
43
700 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðargerði 5
Skoða eignina Heiðargerði 5
Heiðargerði 5
190 Vogar
78 m2
Fjölbýlishús
312
614 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 36
Bílastæði
Opið hús:11. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Naustavör 36
Naustavör 36
200 Kópavogur
107.7 m2
Fjölbýlishús
312
974 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin