Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Hamravík 4

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
174 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
602.874 kr./m2
Brunabótamat
97.800.000 kr.
Byggt 2024
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25343311
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Hamravík 4 á Selfossi.
Um er að ræða 174 fm. parhús en bílskúr er 44,6 fm. þar af samkvæmt fasteignamati.
Eignin er staðsett í hinu svokallaða Jórvíkurhverfi. Húsið er nýlegt byggt árið 2024 úr timbri og klætt að utan með báruáli en bárujárn er á þaki. Búið er að steypa innkeyrslu með snjóbræðslu og sólpallur við húsið er langt kominn en þar er gert ráð fyrir skjólveggjum og heitum potti, búið er að leggja lagnir fyrir heitan pott . 

Húsið telur samkvæmt teikningu forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymslu og bílskúr. 
Forstofa er flísalögð en inn af forstofu er gestasalerni sem er flísalagt, gólf og veggir. Þegar gengið er inn í íbúðina er komi inn í alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, parket er á gólfum. Eldhús er með snyrtilegri rúmgóðri innréttingu frá Formus, borðplötur eru úr marmara frá Granítsmiðjunni. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu öll rúmgóð, inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Baðherbergið er flísalagt, gólf og veggir með innréttingu og gólfsturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Þvottahús er flísalagt með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Bílskúr er frágenginn og snyrtilegur með epoxy á gólfi.

Flísar á gólfi og vegjum eru frá Ebson, hljóðdúkur er í öllum loftum í íbúðinni og Plejd raf stýrikerfi er á ljósum, útiljósum og gólfhita.
Hér er um að ræða snyrtilega, vandaða og vel skipulagða eign í vinsælu nýju hverfi á Selfossi, grunn og leikskóli í göngufæri. 

Nánari upplýsingar veita: 
Snorri Sigurðarson, löggildur fasteigna og skipasali, s: 897-7027, snorri@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Djúpahraun 9
Heitur pottur
Skoða eignina Djúpahraun 9
Djúpahraun 9
805 Selfoss
163,1 m2
Sumarhús
423
Tilboð
Skoða eignina Asparlaut 1
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
162 m2
Fjölbýlishús
413
555 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Huldudalur 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Huldudalur 17
Huldudalur 17
260 Reykjanesbær
172,5 m2
Parhús
514
463 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1- 0406
Bílastæði
Asparlaut 1- 0406
230 Reykjanesbær
156,7 m2
Fjölbýlishús
423
593 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin