Mjög gott fjölskylduhús í Hraunbæ – 187,1 m² m/bílskúr ásamt rúmgóðum sólskála, gróðurhúsi og stórri timburverönd. Sigrún Matthea hjá RE/MAX kynnir: Gott og vel skipulagt fjölskylduhús í Hraunbær 89, í svokölluðu Garðhúsahverfi. Eignin býður upp á rúmgóðar vistarverur, bjarta stofu með arni, veglegan sólskála, gróðurhús og stóra timburverönd. Fjölbreyttir nýtingarmöguleikar eru í húsinu og möguleiki á að fjölga svefnherbergjum.
Viltu fá söluyfirlit sent strax opna hér
Hér er hægt að skoða eignina í 3D
Eign í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Árbæ þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir og íþróttastarf. Elliðaárdalurinn er í nágrenninu með fjölbreyttum útivistarmöguleikum og fallegum göngu- og hjólaleiðum.Samkvæmt skráningu HMS er íbúðarhluti eignarinnar stærð 166,4 m² og bílskúr stærð 20,7 m², samtals stærð 187,1 m². Til viðbótar er rúmgóður sólskáli og gróðurhús m/ Kirsuberjatrjám, stærð er ekki talin með í skráðri fermetratölu eignarinnar.
Falleg fjölskyldueign með mikla möguleika sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veitir: Sigrún Matthea, sími 695-3502 löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX Netfang: sms@remax.isNánari lýsing eignarAnddyri: Flísar á gólfi.
Forstofuherbergi: Viðarparket á gólfi. Herbergi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Gestasalerni: Salerni, lítil handlaug og flísar á gólfi.
Hol: Rúmgott hol sem er í dag nýtt sem borðstofa. Viðarparket á gólfi.
Eldhús: Eldri eldhúsinnrétting gott skápa og vinnupláss, korkur á gólfi. Inn af eldhúsi er búr.
Búr: Hillur á veggjum, dúkaflísar á gólfi.
Stofa: Stór og rúmgóð stofa
með fallegum arni og viðarparketi á gólfi. Inn af stofunni er aukarými sem nýta mætti sem skrifstofu, sjónvarpsherbergi eða svefnherbergi eftir þörfum.
Úr stofunni er gengið út í veglegan sólskála og þaðan áfram út á stóra timburverönd.Sólskáli: Rúmgóður sólskáli sem er skemmtileg viðbót við íbúðarrýmið og tengir húsið vel við útisvæðið. Þaðan er útgengt á timburveröndina.
Gangur: Gengið í svefnherbergi, baðherberi og þvottaherbergi / geymslu, viðarparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Fataskápar viðarparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Mjög rúmgott svefnherbergi sem áður voru
tvö aðskilin herbergi, harðparket á gólfi.
Möguleiki er á að skipta því aftur upp í tvö svefnherbergi.Baðherbergi: Eldri innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og salerni. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi: Innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur og flísar á gólfi.
Geymsla: Góð geymsla með hillum á veggjum og flísum á gólfi. Úr geymslunni er aðgengi upp á háaloft, auk þess sem útgengt er út á lóðina úr geymslu.
Bílskúr: Rafmagn, heitt og kalt vatn er í bílskúr. Samkvæmt skráningu HMS er bílskúrinn 20,7 m².
Timburverönd og lóð: Stór timburverönd með markísu, grillhúsi og gróðurhúsi. Skemmtilegt útisvæði sem býður upp á góða möguleika til útiveru og samverustunda.
Framkvæmdir samkvæmt eiganda
Þak endurnýjað árið 2005.
Skóplagnir endurnýjaðar.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Hiti lagður í gangstétt fyrir framan hús. Hér er um að ræða góða fjölskyldueign með rúmgóðum vistarverum, sólskála og skemmtilegu útisvæði. Eign sem býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fjölskylduna á góðum stað í Árbæ.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Sigrún Matthea, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX
Sími: 695-3502
Netfang: sms@remax.is
Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ? og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502