BYR fasteignasala kynnir HVERAHLÍÐ 13, 810 Hveragerði í einkasölu. Villa Hveragerði, þriggja herbergja einbýlishús með laufskála á eftirsóttum stað í eldri hluta Hveragerðis, húsið er teiknað af Önnu B. Hansen arkitekt.
Fyrirliggjandi eru samþykktar teikningar fyrir breytingu (viðbót) á húsinu teiknaðar af Önnu B. Hansen arkitekt.
Tækifæri til að eignast einstakt hús á eftirsóttum stað í Hveragerði. Smellið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: Anddyri, stofa, borðstofa og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gangur.
Stærð: Íbúð 82,8 m², Gróðurhús 19,6 m² samtals 102,4 m². Byggingarár: Íbúð 1963, Gróðurhús 2015, samkvæmt skráningu HMS.
Nánari lýsing: Anddyri með fatahengi, flot á gólfi.
Stofa með floti á gólfi, innbyggðir skápar sem skilja að stofu og borðstofu, frá stofu eru tvær tröppur með náttúruflísum að öðrum rýmum hússins.
Eldhús með náttúrflísum á gólfi, AEG helluborð, Whirlpool ofn í vinnuhæð, Electrolux ísskápur, Electrolux uppþvottavél. Í eldhúsi er lúga að þakrými hússins.
Borðstofa er við eldhús, náttúruflísar á gólfi, útgengt er frá borðstofu út á timburverönd til austurs með heitum potti.
Svefnherbergin eru tvö í dag, gegnheilt parket á gólfi beggja. Minna herbergið er með fatahengi, útgengt er út á verönd frá stærra herberginu (minna herbergið er skráð geymsla á samþykktum teikningum).
Baðherbergi með náttúruflísum á gólfi, sturta, veggur sturtuhorns er flísalagður, vegghengt salerni, vaskinnrétting, veggskápar, þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Mublur og innanstokksmunir fylgja eigninni að hluta, persónulegir munir, listaverk, bókaskápar og innréttingar í stærra herberginu fylgja ekki. Húsið er upphitað með gólfhita og ofnum. Gólfhiti er í stofu og anddyri, ofnar eru í öðrum rýmum.
Húsið er byggt í tveimur hlutum, upprunalegi hlutinn er byggður árið 1963, viðbygging er byggð árið 2007. Árið 2007 var eldri hluti hússins allur tekinn í gegn og endurnýjaður að innan og utan ásamt því að byggt var við húsið þar sem er í dag stofa og anddyri. Gróðurhús var byggt árið 2015.
Viðbygging og endurbætur hússins voru hannaðar af Önnu B. Hansen Arkitekt.Samþykktar teikningar af viðbyggingu við húsið hannaðar af Önnu B. Hansen Arkitekt samþykkt 10.06. 2016 fylgja með í kaupunum, greitt hefur verið fyrir byggingarleyfi á viðbyggingunni. Viðbyggingin getur mögulega verið á tveimur hæðum.
Húsið er klætt með standandi timburklæðningu, þak er að hluta klætt með bárujárni og að hluta með þakpappa, timburgluggar og hurðar. Í skáp aftan við húsið er heitavatnsinntak og stýrikerfi fyrir heitan pott. Rafmagnstafla er við tröppur úr stofu.
Malar bílaplan er við húsið,
timburverönd er framan við húsið til suðurs að inngangi og meðfram vestur hlið hússins að
heitum potti (heitavatns pottur). Lóðin er gróin með trjágróðri, afgirt að hluta, laufskáli er austan við húsið frá honum er útsýni til austurs og suðurs, við Laufskála er norsk timburfánastöng.
Sandhólahver er við lóðarmörk eignarinnar.