Atvinnueign kynnir til leigu: 410 fm iðnaðarhúsnæði við Miðhraun 8 í Garðabæ. Húsnæðið er afgirt með lokuðu innkeyrsluhliði og stóru 900 fm útisvæði. Laust strax.Um er að ræða vel staðsett iðnaðarhúsnæði með rafdrifinni 6 m hárri innkeyrsluhurð og mikilli lofthæð í rýminu. Lager- og geymsluaðstaða eru til staðar í húsnæðinu. Stórt opið geymslurými á millilofti með járnstiga. Starfsmannaaðstaða, skrifstofur og salerni eru bæði á neðri og efri hæð norðanmeginn í húsnæðinu. Möguleiki er að aðlaga húsnæðið betur að væntanlegum leigutaka og taka niður milliloft og fl.
Þungaiðnaður er stundaður í og við húsnæðið og því er leitað að leigutaka sem er sjálfur í þungaiðnaði eða getur starfað í nágrenni við slíkt.
Laust strax. VSK bætist við leigufjárhæð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafía Pálmadóttir,löggiltur leigumiðlari og viðskiptafræðingur í síma
864 2299 -
olafia@atvinnueign.is Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma
847 7700 -
olafur@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -