Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 og Torg fasteignasala kynnir í einkasölu hæð með sérinngangi í snyrtilegu þríbýlishúsi í botnlangagötu við Njörvasund í Reykjavík. Eignin er á 2. hæð og er birt stærð 107.2 fm þar af geymsla skráð 2,5 m2. Bílskúrsréttur fylgir eigninni.
Gengið er inn um sér inngang í anddyri en þar á hægri hönd er stigi upp í íbúðina. Úr anddyri er einnig gengið inn í sameign en þar er sér geymsla og sér þvottaherbergi sem tilheyrir íbúðinni. Komið er upp stiga úr anddyri, á hægri hönd er gangur/hol með þremur svefnherbergjum ásamt baðherbergi með sturtu. Úr gangi/holi er einnig gengið inn í eldhús, borðstofu og stofu sem eru samliggjandi með útgangi á svalir.
Nánari Lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi.
Stigi: Kókosteppi
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, lítil innrétting og sturta.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp, flísar á gólfi.
Barnaherbergi 1: Rúmgott, flísar á gólfi.
Barnaherbergi 2: Lítið, flísar á gólfi.
Eldhús: Er með hvítri innréttingu og viðar borðplötu, flísar á milli efri og neðri skápar, háfur, flísar á gólfi, tengi fyrir uppþvottavél
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með ágætis útsýni, flísar á gólfi.
Geymsla í sameign: Er um 2,5 fm.
Þvottaherbergi í sameign: Er um 7 fm, þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eitt bílastæði fylgir eignarhlutanum á plani skv., eignaskiptasamningi.
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað:
Árið 2022 var hæðin máluð að innan.
Árið 2020 var húsið múr viðgert og málað að utan.
Þá fengu seljendur upplýsingar um að áður en þau festu kaup á eigninni hafi frárennsli verið endurnýjað undir húsi og drenað árið 2005.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.