*** NÝTT Á SKRÁ - LAUS VIÐ KAUPSAMNING ***
Aldir Fasteignir og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali (S. 774 7373 / ragnar@aldirfasteignir.is), kynna einstaklega fína 91,1fm. þriggja herbergja íbúð á 3. hæð í einu fallegasta fjölbýlishúsi Vesturbæjarins, teiknuðu af Einari Sveinssyni. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni. Á seinustu árum hefur hún verið mikið endurnýjuð, s.s. eldhús, baðherbergi, gólfefni, ofnar og ofnalagnir og nú er hún nýmáluð. Húsið er í reglulegu viðhaldi, skipt hefur verið um alla glugga og svalahurðin er ný. Þetta er virkilega fín eign og ber öll merki smekkvísi og góðrar umgengni. Rúmt og hlýlegt forstofuhol og gangur tengja saman rými íbúðarinnar. Innst í rýminu er innbyggður skápur.
Eldhús: Nýleg stór hvít innrétting með miklu skápaplássi og góðum tækjum sem fylgja. Sjarmerandi lýsing og myndu barstólar njóta sín við hátt borð.
Stofur: Bjartar og fallegar samliggjandi stofur en útbúa má gott herbergi úr annarri þeirra, enda hin vel rúm og þaðan gengið út á suðursvalir þar sem njóta má sólar og mikils útsýnis yfir hverfið, til fjalla og út á Reykjanes.
Svefnherbergi: Vel rúmt herbergi með stórum nýlegum og vel "innréttuðum" skápum með speglahurðum.
Baðherbergi: Baðherbergi er endurnýjað. Flíslagt í hólf og gólf, nett innrétting, upphengt salerni og þreplaus sturta. Fallegur kringlóttur gluggi setur skemmtilegan svip á rýmið.
Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymsla auk sérgeymslu íbúðar sem er 7,7 fm en þar hefur jafnframt verið komið fyrir aðstöðu fyrir þvottavél.
Við húsið er stór sameiginleg lóð, leikaðstaða fyrir börn og gróðurkassar þar sem íbúar rækta matjurtir.
Falleg aðkoma er að húsinu, garðurinn og sameignin öll eru ákaflega snyrtileg.
Að sögn seljenda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á undanförnum árum:
2024 Ruslatunnuskýli endurnýjuð.
2023 Múrviðgerðir ásamt málun utanhúss.
2023 Þakskegg endurnýjað.
2023 Skipt um alla glugga í eigninni ásamt svalahurðum.
2022 Þak málað.
Eign sem virkilega er vert að skoða. Örstutt er í leikskóla, grunnskóla, Háskóla Íslands, sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, Kaffi Vest, Háskólabíó, íþróttasvæði KR o.fl. Í næsta nágrenni er Ægissíðan með göngustígum, hjólastígum og hlaupabrautum meðfram ströndinni.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða ragnar@aldirfasteignir.is Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.