Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð íbúð með sérinngangi í kjallara í fjórbýli á eftirsóttum stað í Þingholtunum. Stór eignarlóð og sérbílastæði. Stutt frá Hljómskálagarðinum, kaffihúsum og annarri þjónustu. Íbúðin er í göngufjarlægð frá BSÍ, Reykjavíkurflugvelli, miðbæ Reykjavíkur og í alla helstu þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og stofu
Nánari lýsing:Gengið er inn í forstofu í gegnum sérinngang.
Gangur sem tengir saman aðrar vistverur íbúðar. Parketlagður.
Eldhús er opið við stofu með snyrtilegri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Parket á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt. Parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð og íbúðin.
Sameignin, lóð og ytra byrði húss lítur vel út. Húsið var múrviðgert og málað árið 2018. Tröppur voru múrviðgerðar 2020 og árið 2024 var skipt um fjölda glugga í húsinu. Lóðin er stór og er í sameigin. Á lóð er sérmerkt rúmgott bílastæði fyrir íbúðina.
Smáragata 5 viðhald:2016 Skolplagnir fóðraðar.
2017 Sigagangur málaður og skipt um ljós í sameign.
2018 Þak yfirfarið
2019 Hús múrviðgert og málað að utan.
2020 Tröppur múrviðgerðar
2021 Garðhreinsun, grafin upp stétt, tré fjarlægð, tyrft að hluta, viðarvörn.
2022 Skólp myndað og í góðu ástandi, einnig vatn og rafmagn.
2023 Skipt um þrýstijafnara í hitagrind.
2024 Skipt um 13 glugga í húsinu (Þar af 4 á 1. hæð, 5 á 2. hæð og 4 á 3. hæð).
2024 Sprunga í útidyratröppum lagfærð og þær vatnsvarðar með silanefni.
Nánari upplýsingar veita:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali, í s:824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook