Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Fornhagi 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
99.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
854.985 kr./m2
Fasteignamat
80.350.000 kr.
Brunabótamat
52.650.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1957
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2028264
Landnúmer
106498
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Verið að skipta út heita- og kaldavatns lögnum.
Raflagnir
Dregið í nýjar raflagnir í íbúð fyrir ca 20 árum
Frárennslislagnir
Verið að skipta um stamma og lögn út í götu
Gluggar / Gler
Nýlegir gluggar/gler að hluta
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Yfirstandandi framkævmdir: Verið er að skipta út stamma í húsinu og út í götu, drena í kringum húsið, einnig er verið að skipta út heita og kaldavatns lögnum.
Kvöð / kvaðir
ATH. búið er að breyta skipulagi eignarinnar frá upprunalegum/samþykktum teikningum.
-Búið er að gera 3 svefnherbergi í stað stofu og borðstofu.
-Tekið var af skáp/geymslu til að stækka baðherbergi og koma fyrir þvottavél/þurrkara og skáp.
-Auka salerni var komið fyrir þar sem áður var herbergi.
 
Valhöll fasteignasala kynnir 4 herbergja íbúð á efstu hæð í Fornhaga 11, 107 Reykjavík.
Stutt er í alla helstu þjónustu sem og skóla, háskóla og matvörubúð.

Íbúðin er á 3. hæð (efstu hæð), í dag hefur eigninni verið breytt og komið fyrir 6 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 1 eldhúsi. Komið er inn í forstofu við hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðar. Lítið fataherbergi/geymsla á vinstri hönd. 
Stærð íbúðar er uppgefin 99,3 fm, þar af er 6,7 fm geymsla í kjallara. Svalir eru 3,1 fm en sú stærð er ekki talin með í heildar fermetrum. Í kjallara er geymsla ásamt hjóla- og vagngeymslu og sameignlegu þvottahúsi.

ATH: Allt innbú getur fylgt með íbúðinni.

Ytra byrði hússins hefur fengið gott viðhaldið í gegnum tíðina, sjá nánar neðar í lýsingu.

NÁNARI LÝSING
Forstofa/Gangur: Opin inn við gang með flísum á gólfi, skápur/fatahengi á vinstri hönd og parket á gólfi gangs.
Eldhús: með ljósri innréttingu, flísar á gólfi.
Baðherbergi 1: með baðkari, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innréttingu undir vaski, glerskáp á vegg og flísum á gólfi og veggjum.
Baðherbergi 2: með sturtuklefa, lítilli innréttingu undir vask, flísar á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi 1: gengið inn af gangi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: gengið inn af gangi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: gengið inn af gangi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: gengið inn af gangi, útgengi út á svalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi 5: gengið inn af gangi, gluggar á suður og vestur hlið, parket á gólfi.
Svefnherbergi 6: gengið inn af eldhúsi, parket á gólfi.
Sérgeymsla: er í kjallara, um 6,7 fm að stærð.
Sameign: Í kjallara hússins er þvottahús/þurrkherbergi ásamt hjóla og vagnageymslu.


Viðhald á húsinu undanfarin ár:

2026/Yfirstandandi framkvæmdir: Verið er að skipta út stamma í húsinu og út í götu, drena í kringum húsið, einnig er verið að skipta út heita og kaldavatns lögnum.
2025: Allar rafmagnstöflur í húsinu endurnýjaðar.
2022: Nýjir gluggar í íbúðinni á suður og vestur hlið, svalahurð var einnig skipt út. Skipt um glugga að hluta til í sameign. Gluggar á austur hlið voru metnir í góðu ástandi svo ekki var þörf á að skipta þeim út.
-Dregið hefur verið nýtt rafmagn í alla íbúðina fyrir u.þ.b 20 árum samkvæmt seljanda.
-Húsið var steinað að utan fyrir nokkrum árum síðan.


Frekari upplýsingar um eignina veita:
Óskar H Bjarnasen löggiltur fasteignasali/lögmaður í síma 6911931 eða oskar@valholl.is
Guðrún Margrét Gísladóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 6169552 eða gudrun@valholl.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/11/202574.300.000 kr.95.175.000 kr.99.3 m2958.459 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njálsgata 85
Skoða eignina Njálsgata 85
Njálsgata 85
101 Reykjavík
70,4 m2
Fjölbýlishús
412
922 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 26
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:14. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Mýrargata 26
Mýrargata 26
101 Reykjavík
66 m2
Fjölbýlishús
211
1041 þ.kr./m2
68.700.000 kr.
Skoða eignina Gerplustræti 23
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Gerplustræti 23
Gerplustræti 23
270 Mosfellsbær
113,8 m2
Fjölbýlishús
413
816 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 2
3D Sýn
Skoða eignina Ljósheimar 2
Ljósheimar 2
104 Reykjavík
96,5 m2
Fjölbýlishús
312
776 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin