Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna bjarta, vel skipulagða og virkilega snyrtilega 3ja herbergja íbúð við Engjadal 2, 260 Reykjanesbæ.
Eignin er 117 fm að stærð, með sérinngangi, tveimur svefnherbergjum, stórri forstofu, mjög góðu þvottahúsi/geymslu innan íbúðar, og henni fylgir bílskúr. Laus við kaupsamning.
Nánari lýsing: Forstofa með ljósum flísum á gólfi og góðum tvöföldum fataskáp. Eldhús er opið og er með hvítri innréttingu, flísum á milli efri og neðri skápa, helluborði, bakaraofni og innbyggðri uppþvottavél. Góður gluggi er á eldhúsi. Stofan og borðstofan eru með eikarparketi á gólfi og þaðan er útgengt út á hellulagða verönd sem er sérafnotaflötur eignarinnar. Þar má byggja pall. Bæði svefnherbergin eru parketlögð með góðum fataskápum. Baðherbergi er flísalagt og með glugga, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og upphengdu klósetti. Þvottahús/geymsla er flísalögð, mjög rúmgott rými með flottri innréttingu og hillum. Bílskúrinn er 31,4 fm, flísalagður með heitu og köldu vatni. Mjög snyrtilegur.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign hússins. Eignin er staðsett steinsnar frá Stapaskóla, en þar er sundlaug og íþróttahús. Á Fitjum er öll helsta þjónusta, s.s. verslun og veitingar. Stutt er út á Reykjanesbraut frá eigninni.
Þetta er virkilega vel með farin eign sem hefur verið í eigu sama aðila frá því að hún var byggð. Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
22/06/2006
732.000 kr.
16.900.000 kr.
85.6 m2
197.429 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.