Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala Borgarnesi kynna:
Flott tækifæri til að koma sér upp einbýlishúsi með frábærri staðsetningu, rétt við íþróttahús og grunnskóla, í Borgarnesi.
Hér er gott tækifæri fyrir réttan aðila til að nýta þá mörgu möguleika sem þessi eign býður upp á.
Borgarbraut 25b er 184,4 fm einbýli með fimm svefnherbergjum ásamt 17,5 fm geymsluskúr. Stór og gróinn garður með skjólgóðri steyptri verönd. Húsið stendur við Skallagrímsgarð og er grunnskóli, sundlaug, íþróttasvæði og leikvöllur í göngufæri. Stutt í alla almenna þjónustu. Frábær staðsetning.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Eignin hefur verið í eigu verktaka síðasta árið, sem bætti við herbergjum fyrir verkamenn. Húsið getur verið afhent bæði eins og það stendur í dag eða búið að fjarlægja uppsett aukaveggi og breytingar sem gerðar voru, kjósi kaupandi það.
Almenn lýsing - eins og húsið var í apríl 2025:
Húsið er steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum, byggt árið 1912 og viðbygging árið 1978. Áfastur geymsluskúr er við húsið, stærð um 17,5 fm. sem ekki er talinn með í birtum fermetrum hússins. Samtals eru þetta 201,9 fm alls. Aðalinngangur á efri hæð þar sem er anddyri, miðrými, eldhúsi með borðkrók, rúmgóðri og bjartri stofu/borðstofu, einu stóru svefnherbergi og tveimur rúmgóðum barnaherbergjum. Á neðri hæð Gengið er hol, tvö svefnherbergi, þvottahús og stórt baðherbergi með geymslu inn af. Inngangur á neðri hæð er einnig á suðurhlið hússins inn frá steyptum sólpall með skjólvegg. Geymsluskúr á norðuhlið hússins er klæddur með timbri að framan, ekki tengt rafmagn eða vatn.
Nánari lýsing:
Efri hæð (123 fm):
Inngangur: Steyptar tröppur, steyptur pallur og handrið úr timbri.
Anddyri: Laus fataskápur og flísar á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og bjart með eldri u-laga hvítri innrétting, góður borðkrókur og flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart rými með stórum gluggum, nýtt gólfefni sett 2025 (plastparket).
Herbergi I: Hjónaherbergi með lausum skáp, parket á gólfi og ný hurð sett 2025.
Herbergi II: Rúmgott herbergi inn af stofu, ný hurð og nýtt gólfefni frá 2025.
Herbergi III: Rúmgott svefnherbergi inn af stofu, útgengt á litla verönd, ný hurð og nýtt gólfefni var sett 2025.
Neðri hæð (61,4 fm):
Stigi milli hæða er úr timbri.
Hol/forstofa: Gengið niður stiga og komið í hol (miðrými), á móts við stiga er svo gengið inn að utan frá sólpalli og eru flísar á gólfi.
Baðherbergi: Hvít eldri innrétting, baðkar og sturta (komið tími á endurnýjun), handklæðaofn og fyrir ofan baðkar var gluggi sem fylltur hefur verið með múrsteinum.
Geymsla: Rúmgóð köld geymsla sem skipt hefur verið niður í tvær og er gengið inn frá baðherbergi. Þar eru steypt gólf.
Þvottahús: Vaskur, opnanlegur gluggi og málað gólf.
Svefnherbergi: Tvö minni herbergi eru á þessari hæð.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.