Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Melalind 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
130.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
712.970 kr./m2
Brunabótamat
67.970.000 kr.
Byggt 1997
3. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22297681
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali (s: 694 4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða virkilega fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt bílskúr á þessum vinsæla stað í snyrtilegu fjölbýli við Melalind 6 í Kópavogi. Virkilega vel umgengin sameign. Mjög fallegt útsýni er frá stofu og eldhúsi til vesturs yfir Kópavogsdalinn. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 96 fm merkt 03-01 og geymslan er merkt 01-04 og er hún 8,2 fm ásamt 26,1 fm bílskúr (merktur: 01-02) eða samtals: 130,3 fm. Þakið var yfirvarið og málað árið 2018 og stigagangur málaður og skipt um teppi árið 2017.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í hol með innbyggðum fataskáp. Á hægri hönd við inngang er stofa með útgangi út á rúmgóðar svalir með timbur flísum á svalargólfi. Eldhúsið er með fallegri nýlegri grárri háglans innréttingu (frá árinu 2019), mósaíkflísar milli efri og neðri skápa, span helluborð. Mjög rúmgóður borðkrókur. Innaf eldhúsinu er búr með nýlegri innréttingu. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sér sturta og baðkar með sturtu. Snyrtileg innrétting með efri og neðri skápum og spegli á milli. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Tvö svefnherbergi og er fataskápur í báðum herbergjum. Eigninni fylgir 8,2 fm sérgeymsla með hillum. Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla. Bílskúr með heitu og köldu vatni, rafmagnsopnara og skolvaski. Búið að leggja fyrir hleðslustöð en stöðin mun ekki fylgja með í kaupunum. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. 

ÞETTA ER FALLEG EIGN Í RÓTGRÓNU OG FJÖLSKYLDUVÆNU HVERFI ÞAR SEM STUTT ER Í VERSLANIR OG ÞJÓNUSTU.
 
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klettás 3
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:03. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Klettás 3
Klettás 3
210 Garðabær
143.6 m2
Raðhús
312
926 þ.kr./m2
133.000.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb.303
Lautargata 5 íb.303
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
933 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb.301
Lautargata 5 íb.301
210 Garðabær
129.3 m2
Fjölbýlishús
413
955 þ.kr./m2
123.500.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb.203
Lautargata 5 íb.203
210 Garðabær
139.7 m2
Fjölbýlishús
413
923 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin