Fasteignaleitin
Skráð 8. nóv. 2026

Engjaland 4, íb. 104

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
234.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.800.000 kr.
Fermetraverð
378.840 kr./m2
Brunabótamat
156.480.000 kr.
Byggt 2024
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25272081
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS (alla virka daga milli kl.9 og 18) Í SÍMA 771-5211 EÐA GUDNYTH@ALDIRFASTEIGNIR.IS

ALDIR FASTEIGNIR
 og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Engjaland 4, íbúð 104, björt og falleg þriggja herbergja enda íbúð á jarðhæð með sér inngangi í lyftuhúsi með bílastæði í bílastæðakjallara í vandaðri nýbyggingu fyrir 55 ára og eldri. Íbúðin er laus til afhendinga, fullfrágengin með gólfefnum. Frekari upplýsingar um bygginguna er að finna á  Engjaland.is. 

Eignin samanstendur af: Forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, eldhúsi og stofu sem eru í samliggjandi flæðandi rými, ásamt útgangi út á verönd. Einkabílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt geymslu. Gólfefni eru vínilparket og flísar í votrýmum.
Samkvæmt Fasteignamati Ríkisins er íbúðin samtals 117,2m2 þar af er geymsla í sameign 9,7m2. Verönd er 7,5m2.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Er með fataskápum sem ná upp í loft.
Herbergi I: Gæti notast sem gestaherbergi eða skrifstofa.
Herbergi II: Er rúmgott með fataskápum sem ná upp í loft.
Baðherbergi: Er flísalagt með steini á borði, vaski með skúffum undir, upphengdu salerni, rúmgóðri "walk in" sturtu. 
Þvottahús: Er með þvottavéla-innréttingu, skápum ásamt skolvaski.
Eldhús/borðstofa: Undir efri skápum er innfræst led- lýsing, á borðplötum í er steinn sem heitir Meteor Ice frá S. Helgasyni. Í innréttingunni eru vönduðum tæki af gerðinni AEG frá Ormsson, blástursofn, innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðum kæliskáp með frysti. Á eyju er span helluborð með fallegum háfi yfir. Borðstofan er rúmgóð í opnu og björtu rými með útgangi út á verönd.
Stofa/alrými: Er í stóru og björtu alrými 
Verönd: Er séreign og er 7,5fm.
Geymsla: Er 9,7fm - nr.0008.
Bílastæði: Er merkt B02 í upphituðum bílastæðakjallara.
Íbúðinni fylgja ýmis þægindi:  
Í íbúðinni er sérstakt loftræstikerfi sem bætir loftgæði og tryggja rétt loftskipti. Innfelld lýsing í öllum rýmum. Lagt er fyrir rafhleðslustöð í bílageymslu. Allar íbúðir eru með sérmerkt bílastæði þar af fjórar íbúðir með sérmerkt bílastæði fyrir utan bygginguna og 10 íbúðir með sérmerkt stæði í bílakjallara byggingarinnar. Á bílaplani fyrir utan bygginguna eru 19 bílastæði þar af tvö sérmerkt fyrir hreyfihamlaða. Litaval á innréttingum er virkilega fallegt og milt.
Þetta er björt og falleg eign með öllum helstu þægindum nútímans

Byggingaraðili: RENY ehf
Byggingarstjóri: Húsaverk ehf
Iðn- og lýsingahönnuður: Sólveig Andersen
Hönnun húss og lóðahönnun: Pro-Ark teiknistofa
Verkfræðihönnun: Verkfræðistofan Hnit
Raflagnahönnun: Rafhönnun ehf

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt er við afsal. 

Ítarlegri upplýsingar veitir Guðný Þorsteins. í s:771 5211 eða gudnyth@aldirfasteignir.is 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 79.900 kr. m.vsk.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engjaland 4. íb. 201
Hleðslustöð
Engjaland 4. íb. 201
800 Selfoss
128 m2
Fjölbýlishús
322
764 þ.kr./m2
97.800.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4, íb. 402
Hleðslustöð
Engjaland 4, íb. 402
800 Selfoss
169,2 m2
Fjölbýlishús
322
785 þ.kr./m2
132.800.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4, íb. 204
Hleðslustöð
Engjaland 4, íb. 204
800 Selfoss
119,3 m2
Fjölbýlishús
322
753 þ.kr./m2
89.800.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4, íb. 202
Engjaland 4, íb. 202
800 Selfoss
92,3 m2
Fjölbýlishús
312
795 þ.kr./m2
73.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin