Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 7.hæð í lyftuhúsi við Engihjalla 3 í Kópavogi. Góð staðsetning með glæsilegu útsýni miðsvæðis á höfðuborgarsvæðinu nálægt allri helstu þjónustu.
** 2 svefnherbergi
** Gott útsýni
** Frábær fyrstu kaupNánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr
660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 78,4m2.
Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir hæðina og í kjallara er sérgeymsla sem ekki er í fermetratölu.
Nánari lýsing:
Anddyri er með góðum fataskápum með filmuðum skáphurðum. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu og ljósri borðplötu, bakaraofni, helluborði og stæði fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð með útgengi á rúmgóðar svalir með glæsilegu útsýni. Hljóðdempandi plötur á hluta veggja. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskápum og útgengi á svalirnar. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu sem er filmuð að hluta, handlaug, salerni og "walk-in" sturtu með nýlegum blöndunartækjum og sturtuhaus. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Sérgeymsla er í sameign og er hún ekki inni í fermetratölu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.