ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Björt og vel skipulögð parhúsaíbúð í grónu hverfi á Stokkseyri.
Húsið er steypt, klætt að utan með Steniklæðningu, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð íbúðarinnar er 90,5m2 og skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu og eldhús.
Nánari lýsing:
Forstofan er rúmgóð, flísar eru á gólfi.
Upprunaleg innrétting er í eldhúsi, parket er á gólfi. Innaf eldhúsi er búr með glugga.
Stofan er rúmgóð, parket er á gólfi en hurð er út á baklóð í stofunni.
Baðherbergi er flísalagt, dúkur er á veggjum. Þar er lítil innrétting, handklæðaofn og sturtuklefi.
Spónaparket er á herbergjum og eru fataskápar í þeim báðum.
Sólpallur er á baklóð.
Lóðin er gróin og innkeyrsla er með mulningi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.