Fasteignaleitin
Opið hús:24. ágúst kl 16:00-16:30
Skráð 14. ágúst 2026

Strikið 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
112.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.000.000 kr.
Fermetraverð
972.346 kr./m2
Fasteignamat
92.750.000 kr.
Brunabótamat
68.450.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Byggt 2006
3. hæð
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2273544
Landnúmer
198252
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
22
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir, yfirbyggðar
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Vert er að benda á smá skemmdir í parketi.
Kvöð / kvaðir
Íbúðirnar eru ætlaðar eldri borgurum sbr. 8. gr. lóðarleigusamnings. Ef íbúð er seld til fyrirtækis eða einstaklinga yngri en 60 ára þarf Garðabær að samþykkja söluna t.d. með áritun á kaupsamning eða afsal.
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi fyrir 60 ára og eldri í Sjálandinu í Garðabæ, með yfirbyggðum suðursvölum og stæði í bílageymslu. Innangengt er úr húsinu í Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ en þar fer fram fjölbreytt félags- og tómstundastarf auk þess sem boðið er upp á ýmsa þjónustu og hægt er að fá heitan mat í hádeginu.

Við húsið er einstaklega falleg og vel hirt lóð sem hefur hlotið viðurkenningar frá Garðabæ. Góðar gönguleiðir eru allt í kring og stutt er í fjölbreytta þjónustu. Innisundlaug er hinum megin við götuna og gangstétt fyrir framan húsið er upphituð. Hér er um að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign á eftirsóttum stað þar sem þægindi, þjónusta og fallegt nærumhverfi fara einstaklega vel saman.

Birt stærð eignarinnar er 112,1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 5,3 fm sérgeymsla í kjallara.

Eignin skiptist í forstofu, bjarta og rúmgóða stofu og borðstofu í opnu rými með eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Að auki fylgir sérgeymsla í kjallara og merkt stæði í bílageymslu og búið er að leggja rafmagn að stæðinu fyrir hleðslustöð.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Ég veiti einnig allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða á netfanginu thorey@fastlind.is
 
Nánari lýsing:

Forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús, vönduð og falleg innrétting með góðu skápaplássi og eldhúseyju. Bakarofn er í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu alrými með eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt á 7,7 fm yfirbyggðar suðursvalir.
Svefnherbergi I með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta, vönduð innrétting og upphengt salerni.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og vaski. Flísar á gólfi.
Geymsla innan íbúðar með góðum hirslulausnum. Parket á gólfi.
Sérgeymsla í kjallara (5,3 fm) með hillum og máluðu gólfi.
Bílastæði í bílageymslu, merkt stæði, 01 Y2 - rafmagn er lagt að stæðinu fyrir hleðslustöð.

Húsgjöld eignarinnar eru 32.443 krónur á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging, framkvæmdasjóður og rekstur bílageymslu.
 
Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald. Sameign er snyrtileg og næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð. Frá anddyri hússins er innangengt beint í Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ, þar sem Félag eldri borgara í Garðabæ hefur einnig aðsetur. Þar fer fram fjölbreytt félags- og tómstundastarf og ýmis þjónusta er í boði, meðal annars heitur matur og kaffi. Snyrtistofa, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa beint á móti og innisundlaug er í Sjálandsskóla. 
 
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum netfangið thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/04/202262.000.000 kr.82.000.000 kr.112.1 m2731.489 kr.Nei
19/04/201125.800.000 kr.32.700.000 kr.112.1 m2291.703 kr.Nei
20/11/200726.835.000 kr.36.000.000 kr.112.1 m2321.141 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2006
Fasteignanúmer
2273544
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
09
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.850.000 kr.

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólatröð 2
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Skólatröð 2
Skólatröð 2
200 Kópavogur
109.3 m2
Fjölbýlishús
413
896 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 2
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Skólatröð 2
Skólatröð 2
200 Kópavogur
109.8 m2
Fjölbýlishús
43
883 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 2
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Skólatröð 2
Skólatröð 2
200 Kópavogur
92.1 m2
Fjölbýlishús
312
1030 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 2
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Skólatröð 2
Skólatröð 2
200 Kópavogur
92.2 m2
Fjölbýlishús
312
1029 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin