Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með sérinngangi við Álalækur 6 á Selfoss.Um er að ræða 3ja herbergja 102,8 fm. íbúð í steyptu fjórbýlishúsi á tveimur hæðum.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og góða geymslu innan íbúðar.
Nýlegt harðparket á gólfum.
Gólfhiti í allri íbúðinni með hitastýringu í flestum rýmum.
Mjög góð lofthæð í íbúðinni.
Stórar suðvestur svalir með fallegu útsýni.
Útigeymsla við innganginn.
Búið er að samþykkja framkvæmdir við að malbika bílaplanið á þessu ári sem seljandinn greiðir.Eignin Álalækur 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign
231-1582, birt stærð 102.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Myndbandshlekkur hérNánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða
gimli@gimli.isNÁNARI LÝSING:Anddyri: Með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Þvottahús: Inn af forstofu er þvottahús með vinnuborði og vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísum á gólfi og glugga.
Eldhús: Í alrými er eldhús er með góðri innréttingu, lausri eyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði, nýlegri borðplötu, nýlegum háf, bakstursofni, hvítum flísum á milli skápa og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými er virkilega björt og rúmgóð, útgengi út á stórar suðvestur svalir, sérsniðin sólargluggatjöld og parket á gólfi.
Gangur: Með parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi og skápum.
Svefnherbergi#2: Með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu með vaski, efri skáp með speglum, walk inn sturta, upphengt salerni, handklæðaofni, flísalagt í hólf og gólf með fallegum gráum flísum.
Geymsla / fataherbergi: Rúmgóð geymsla sem nýtt er að hluta til sem fataherbergi, parket á gólfi.
Lóð: Lóðin er sameiginleg eignarlóð Álalæks 2, 4 og 6. Baklóð er þökulögð og að framan eru bílastæði og stétt með möl. Búið er að samþykkja að malbika bílastaðin á þessu ári sem eigandinn greiðir.
Niðurlag:Eignin er vel staðsett miðsvæðis á Selfossi og stutt er í alla almenna þjónustu, leik-, grunn- og framhaldsskóla og útivist. Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala