Fasteignaleitin
Opið hús:26. okt. kl 15:00-15:30
Skráð 22. okt. 2025
Deila eign
Deila

Reynidalur 2 (304)

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
72.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.000.000 kr.
Fermetraverð
742.779 kr./m2
Fasteignamat
19.500.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2538054
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
4,37
Upphitun
Hitaveita/ Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Reynidalur 2, íbúð 304, 260 Reykjanesbær

Ný tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í Dalshverfi. Sameiginlegur inngangur, svalir og sérgeymsla á jarðhæð íbúðar. Afhendist fullbúin að innan sem utan án gólfefna.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit. 

Um verkefnið – Reynidalur 2
Reynidalur 2 er 19 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum með lyftu í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. Í boði eru 2–4 herbergja íbúðir og eignirnar eru lausar við kaupsamning. Húsið er reist úr einangruðum forsteyptum einingum. Á jarðhæð eru fjórar íbúðir með sérinngangi og sérafnotareiti, sérgeymslum, hjólageymslu og tæknirými. Á annarri hæð eru átta íbúðir og á þriðju hæð sjö íbúðir.
Smelltu hér til að sjá nánar um allar eignirnar.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 72.7 m², þar af er íbúðarrými 64.4 m² og sérgeymsla í kjallara hússins 8.3 m².
Eign merkt 03-04, fastanúmer 253-8054 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Eignin skilast fullbúin án gólfefna skv. skilalýsingu:

Frágangur innanhúss:
Eldhús
með sérsmíðaðri innréttingu, möguleika á innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni í vinnuhæð og helluborði. Borðplata úr ljósum Acryl-steini með vaski og innfelldri loftlýsingu. Heimilistæki frá AEG.
Baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með glerskilrúmi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í sérsmíðaðri innréttingu. Gólf og veggir flísalagðir, sturta flísalögð með innfelldu niðurfalli og innfelldri lýsingu. Blöndunartæki Grohe.
Gólfefni afhent tilbúin undir lagningu. Baðherbergi og þvottarými flísalögð 60×60 á gólfi og 60×60 á veggjum í ljósgráum lit, flísar frá Álfaborg.
Innréttingar og fataskápar sérsmíðaðar frá 3 AM í sama lit. Innihurðir frá 3 AM með innfelldum lömum og segullæsingum, í sama lit og innréttingar.

Byggingarlýsing:
Gluggar eru ál/timbur frá Ideal Combi með tvöföldu K-gleri. Þak er steypt með þakeinangrun og dúkklæðningu og undir þurrými er tvöfaldur ábræddur tjörudúkur. Svalir snúa til suðurs, hafa steypt yfirborð og stálhandrið klætt áli. Sérafnotareitir á jarðhæð eru hellulagðir og á svölum og við sérafnotareiti er útiljós og rafmagnstengill. Innveggir eru forsteyptir, múraðir og málaðir; léttir veggir eru úr blikkstoðum og klæddir með tvöföldu gifsi báðum megin. Votrými eru með votrýmismálningu og flísum þar sem við á. Raflagnir eru fullfrágengnar samkvæmt teikningum og ljósleiðari er leiddur að smáspennutöflu hverrar íbúðar. Húsið er hitað með ofnakerfi. Loftræsting er náttúruleg með opnanlegum gluggum og hurðum, vélræn í votrýmum og gluggalausum rýmum, þrýstiventill er í hverri íbúð og loftskiptikerfi í geymslum.

Lóð, aðkoma og sameign:
Bílastæði eru malbikuð og stéttar hellulagðar að húsinu. Stéttar og stæði fatlaðra eru með snjóbræðslu og lóð er að öðru leyti með grasi. Samtals eru 31 malbikuð bílastæði á lóðinni, þar af tvö fyrir hreyfihamlaða. Lagnaleiðir fyrir rafhleðslustöðvar eru lagðar að stæðum. Flísalagt anddyri með póstkössum. Teppi á stigum og stigapöllum. Á jarðhæð/kjallara er sameign með máluðu gólfi, hjóla- og vagnageymsla með máluðum gólfum. Ruslaskýli er á lóð.

Fyrir nánari lýsingu vísast til skilalýsingar byggingaraðila.

Myndir eru til viðmiðunar og geta verið úr sambærilegri íbúð, en endurspegla ekki endilega þessa tilteknu íbúð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reynidalur 2 (304)
Reynidalur 2 (304)
260 Reykjanesbær
72.7 m2
Fjölbýlishús
211
743 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Reynidalur 2 (205)
Reynidalur 2 (205)
260 Reykjanesbær
72.6 m2
Fjölbýlishús
211
737 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Skoða eignina Reynidalur 2 (204)
Reynidalur 2 (204)
260 Reykjanesbær
72.2 m2
Fjölbýlishús
211
741 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Skoða eignina Reynidalur 2 (101)
Reynidalur 2 (101)
260 Reykjanesbær
72.7 m2
Fjölbýlishús
211
743 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin