Fasteignaleitin
Skráð 4. júlí 2024
Deila eign
Deila

Lækjargata 2

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
89.4 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
658.837 kr./m2
Fasteignamat
50.100.000 kr.
Brunabótamat
45.100.000 kr.
Byggt 1824
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2148944
Landnúmer
148840
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurn.2022
Raflagnir
Endurn. 2022
Frárennslislagnir
Endurn.2022
Gluggar / Gler
Endurn. 2022
Þak
Endurnýjað 2022
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Lóð
50
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sjarmerandi og mikið endurbyggt lítið einbýli við Lækjargötu 2a í Innbænum á Akureyri - samtals 89,4 m²

Húsið skiptist í hæð og ris auk geymslu í kjallara.  Neðri hæðin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús/bakdyrainngang.  Í risi eru tvö svefnherbergi.

Aðalinngangur er á austurhlið hússins frá Aðalstræti og þar eru flísar á gólfi.  Annar inngangur er á vesturhlið hússins og að honum er farið frá Lækjargötu.
Stofa og borðstofa eru með harðparketi á gólfi.
Eldhús er með nýrri svartsprautulakkaðri innréttingu með viðarbekkjum.
Svefnherbergin eru tvö og bæði í risi.  Stigar eru uppí herbergin úr eldhúsi.  Á báðum herbergjum er teppi á gólfi, kvistgluggar og geymslur undir súð.
Baðherbergi og þvottahús eru í bíslagi/viðbyggingu vestur úr húsinu. Þessi hluti hússins er nýbygging, en ekki fullkláruð að innan.
Lóðin er lítil en snyrtileg.  Bæði framan við húsið sem og bakvið eru nýlegar hellulagnir með snjóbræðslu í.

Lækjargata 2a er með skráð byggingarár 1824 og því talið næst elsta hús Akureyrarbæjar á eftir Laxdalshúsi.  Húsið er þekkt sem Frökenarhús og er á horni Lækjargötu og Aðalstrætis og er einlyft timburhús með risþaki og kjallara undir norðurhluta. Tveir þakkvistir með skúrþaki eru á framhlið þaks og einn á bakhlið.  Hús eru byggð upp að báðum göflum hússins og snýr framhlið þess að Aðalstræti.  Frökenarhús var friðað 1. janúar 1990 og voru hinar umfangsmiklu framkvæmdir og endurbætur árið 2022 unnar í samvinnu við Minjavernd.

Árið 2022 var farið í umfangsmiklar framkvæmdir á húsinu.
- Bíslag/viðbygging til vesturs endurbyggð.
- Vatns- og rafmagnsinntök endurnýjuð.
- Ofnar og ofnalagnir endurnýjaðar sem og skólplagnir og hitaveitugrind.
- Gólfhiti settur í þvottahús og baðherbergi í bíslagi.
- Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjað.
- Skipt var um járn á þaki, sem og lektur og dúk auk þess sem kvistar voru endurbyggðir.
- Skipt var um alla glugga og hurðar.
- Húsið var klætt að utan með listasúð.
- Nýr sökkull steyptur undir bíslag og sökklar styrktir á húsi.
- Eldhúsinnrétting var endurnýjuð sem og tæki.
- Öll gólfefni sett ný.
- Geymsla í kjallara var tekin í gegn, settur nýr gluggi, gólfhiti og gólf flotað.
- Lóðin bæði fyrir framan og aftan var endurbætt, jarðvegsskipt, hellulagt og sett snjóbræðsla.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/04/202122.100.000 kr.15.500.000 kr.76.2 m2203.412 kr.
25/01/201713.650.000 kr.16.500.000 kr.76.2 m2216.535 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Hvammur Eignamiðlun
https://www.kaupa.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásatún 6 íbúð 303
Ásatún 6 íbúð 303
600 Akureyri
96.3 m2
Fjölbýlishús
313
622 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjargata 2
Skoða eignina Lækjargata 2
Lækjargata 2
600 Akureyri
89.4 m2
Einbýlishús
412
659 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkjartún 22-301
Stekkjartún 22-301
600 Akureyri
87.2 m2
Fjölbýlishús
313
657 þ.kr./m2
57.300.000 kr.
Skoða eignina Elísabetarhagi 2 íbúð 206
Bílastæði
Elísabetarhagi 2 íbúð 206
600 Akureyri
85.9 m2
Fjölbýlishús
312
712 þ.kr./m2
61.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin