Húsaskjól fasteignasala kynnir Laufbrekku 26, fallega íbúðarhæð og látlausa risíbúð. Samtals er birt stærð eignarinnar skv HMS 181,6 fm, hæðin 125,4 fm og risíbúðin 56,2 fm. Að auki er 14 fm nýbyggður sólskáli og sérstæður geymsluskúr u.þ.b. 9 fm. samtals u.þ.b. 204,6 fm. Herbergin eru alls 5, stofur 2, snyrtingar 2 og 2 eldhús. Í skjólgóðu horni við húsið er heitur pottur ( rafmagns ). Innan lóðamarka eru bílastæði fyrir 3 - 4 bíla auk bílastæða við götu.
*** Sölusýning þriðjudaginn 26.11.24 frá kl 16:30 - 17:00 NAUÐSYNLEGT AÐ SKRÁ KOMU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING með því að smella hér ***
Nánari lýsing:
Gengið er upp 2 tröppur inn í forstofu, flísar á gólfi og snagar fyrir yfirhafnir. Þaðan er komið inn á gang, sem liggur um miðbik hússins, flísar á gólfi. Frá ganginum er gengið inn í aðrar vistarverur.
Herbergi 1 er með parket á gólfi, aðskilið frá hjónaherbergi með léttum vegg, hægt að opna inn í hjónaherbergi.
Hjónaherbergið er með parket á gólfi og fataskápum.
Herbergi 2 er með harðparket á gólfi og fataskápum.
Snyrtingin er flísalögð, gólf og veggir, upphengt wc, sturtuklefi, handklæðaofn og vaskur á litlum skáp.
Þvottahúsið er rúmgott, með innréttingu og glugga og lítilli geymslu inn af.
Stofan er opin inn í borðstofu og þaðan inn í eldhús, gólfefni er harðparket og flísar.
Eldhúsið er með góðri innréttingu, granít borðplötum og AEG ofni og helluborði. Uppþvottavél og ísskápur með klakavél og vatni fylgir. Í eldhúsinu er lítill borðkrókur.
Sólskálinn er nýbyggður, með hitalögn í gólfi og útgengi á nýlegan skjólsælan pall.
Risíbúðin:
Gengið er upp utaná liggjandi hringstiga að íbúðinni. Komið inn í litla forstofu, flísar á gólfi, snyrting með upphengdu wc, vaski og sturtuklefa. Herbergin eru tvö og stofa að auki, gólfefnin eru harðparket. Eldhúsið er með flísum á gólfi, eldavél í innréttingu og uppþvottavél. Gólfflötur rísíbúðarinnar er stærri en birt stærð HMS vegna viðmiða um lofthæð.
Upphaflega var stigi á milli hæða innan eignarinnar, hann var tekinn og lokað á milli hæða, en hægt að opna aftur á kostnað eldhússins í risinu.
Stutt sagt:
Fín eign innarlega í rólegum botnlanga, sem býður upp á fjölbreytta möguleika. Næg bílastæði, enginn garðsláttur ekkert vesen.
Upplýsingar um eignina veitir Guðbrandur Kristinn Jónasson lgfs, gudbrandur@husaskjol.is gsm 8963328.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
16/10/2007 | 26.430.000 kr. | 39.000.000 kr. | 178.5 m2 | 218.487 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
200 | 138.9 | 126 | ||
200 | 152.9 | 122 | ||
200 | 152.1 | 125 | ||
200 | 167.7 | 121,5 | ||
200 | 140.8 | 134,9 |