Domus Fasteignasala á Norðurlandi vestra kynnir til sölu Grundartún 15b á Hvammstanga.
Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eignina.Um er að ræða
nýlegt og glæsilegt 156,3 fm raðhús frá árinu 2024, þar af er íbúðarrými
129,1 fm og bílskúr
27,2 fm. Húsið er timburhús og hefur verið afar vel vandað til verka, bæði að innan og utan. Frá eigninni er
magnað útsýni til sjávar.
Efnisval innanhúss er sérlega glæsilegt og vel útfært. Þar má meðal annars nefna
vandaðar Ringo innihurðir, gólfefni frá
Birgisson, fallegar
HTH innréttingar frá Ormsson, stein á eldhúsi og baðherbergi frá
S. Helgasyni, undirlímda vaska og
innfellda LED lýsingu í öllu húsinu. Flísar eru frá
Flísabúðinni,
forhitari er á neysluvatni og
gólfhiti er í öllum rýmum.
Eignin stendur á fallegum stað í bænum þar sem
stutt er í alla helstu þjónustu.Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með fallegum flísum á gólfi. Þaðan er inngengt í bílskúr.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, öll með fallegu gólfefni frá Birgisson, vönduðum Ringo innihurðum og innfelldri LED lýsingu í lofti. Gott skápapláss er í tveimur herbergjanna.
Baðherbergið er mjög rúmgott og smekklega hannað með walk-in sturtu. Þar er glæsileg hvít HTH innrétting frá Ormsson með steini frá S. Helgasyni og undirlímdum vaski. Einnig er þar fallegur baklýstur spegill, vönduð tæki, upphengt salerni og aðstaða fyrir þvottavél.
Eldhúsið er sérlega glæsilegt með fallegri HTH innréttingu frá Ormsson. Í rýminu er eyja og steinn frá S. Helgasyni prýðir innréttinguna, auk undirlímds vasks. Efnisval er afar fallegt og tæki góð. Eldhús og stofa mynda saman opið og bjart alrými með góðri lofthæð og innfelldri LED lýsingu.
Stofan er rúmgóð og björt, í sama opna rými og eldhúsið. Þaðan nýtur fallegs útsýnis og útgengt er í bakgarð.
Bílskúrinn er mjög snyrtilegur og þar er einnig þvottaaðstaða ásamt um
8 fm geymslulofti. Stigi upp á loftið fylgir með.
Hér er um að ræða
einstaklega glæsilega og vel hannaða eign á fallegum stað á Hvammstanga, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 stefano@pacta.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.