Fasteignaleitin
Skráð 25. feb. 2023
Deila eign
Deila

Merkigil Skagafirði

Jörð/LóðNorðurland/Varmahlíð-561
516.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
1.295.000 kr.
Brunabótamat
54.860.001 kr.
ML
Magnús Leópoldsson
Byggt 1582
Fasteignanúmer
F2141950
Húsgerð
Jörð/Lóð
Hæðir í húsi
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu jörðina Merkigil í Austurdal landnúmer 146316 Akrahreppi Skagafirði.

Til sölu er jörðin Merkigil í Austurdal í Skagafirði, fastanúmer 2141950 landnúmer 146316. Jörðin er talin vera um 8.200 hektarar (ónákvæmt). Land jarðarinnar er um 10 km á lengd á bakka Jökulsár eystri, frá Ábæjará í austri að Merkigili í vestri. Vestur af bænum er allnokkuð mýrlendi en til austurs frá bænum meðfram Jökulsánni eru uppgróin valllendis tún. Austan og sunnan þessa undirlendis er fjallshlíð, að mestu gróin. Íbúðarhúsið er steinsteypt frá árinu 1949, ein hæð og ris og kjallari undir þriðjungi hússins, samtals um 160 m2. Á hæðinni eru forstofa, tvær samliggjandi stofur, baðherbergi með sturtu og stórt eldhús. Út úr eldhúsi er innangengt í viðbyggingu, þvottahús og geymslu. Á efri hæðinni eru 4 svefnherbergi. Ástand hússins að innan er gott en komið er að einhverju viðhaldi á ytra byrði. Austan við íbúðarhúsið er uppsteypt geymsla 53 m2, fjós 63 m2 og hlaða 59 m2. Uppsteypt fjárhús, 142 m2, og hlaða, 42 m2, standa rétt austan og neðan íbúðarhússins. Ástand útihúsanna er þokkalegt. Rafmagn var lagt að Merkigili 1974. Á Merkigili er mikil náttúrufegurð og stórbrotið landslag. Veðurfar er mjög milt, úrkoma lítil og sólríkt. Þetta er kjörið land til útivistar. Flúðasiglingar eru stundaðar niður Jökulsána. Góð hestarétt stendur rétt austan bæjarins með geymsluaðstöðu fyrir reiðtygi. Hesta- og gönguferðir er nokkuð algengar um Austurdal að sumarlagi. Föst búseta lagðist af á Merkigili árið 1997. Síðan þá hefur jörðin verið nýtt sem sumardvalarstaður og er þar töluverð útleiga til gistingar af bæði hesta- og göngufólki. Samgöngur eru um Austurdalsveg, þjóðveg 758. Frá Varmahlíð að Merkigili eru rúmlega 50 km. Austan lands Merkigils er kirkjujörðin Ábær.   
Á Merkigili bjuggu margir góðu búi fyrr á öldum en þekktasti bóndi þar er líklega ekkjan Monika Helgadóttir, sem bjó þar með manni sínum Jóhannesi Bjarnasyni frá árinu 1926. Jóhannes lést á besta aldri árið 1944. Monika bjó þar áfram allt fram til ársins 1974. Hún varð þjóðkunn þegar Guðmundur G. Hagalín skrifaði um hana bókina Konan í dalnum og dæturnar sjö árið 1954. Síðasti fasti ábúandinn á Merkigili var Helgi Jónsson. Hann hrapaði til bana í Merkigil árið 1997.

Tilvísunarnúmer 10-2436
 
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími 550 3000
Sjá einnig:  fasteignamidstodin.is fasteignir.is/mbl.is/fasteignir/ fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is

Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali  gsm 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is         
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600  maria@fasteignamidstodin.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1582
Fasteignanúmer
2141951
Húsmat
2.330.000 kr.
Fasteignamat samtals
2.330.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 1949
158.4 m2
Fasteignanúmer
2141952
Númer hæðar
1
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
12.350.000 kr.
Fasteignamat samtals
12.350.000 kr.
Brunabótamat
41.450.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1951
62.8 m2
Fasteignanúmer
2141953
Númer hæðar
1
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
603.000 kr.
Fasteignamat samtals
603.000 kr.
Brunabótamat
2.920.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1961
52.7 m2
Fasteignanúmer
2141954
Númer hæðar
1
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
298.000 kr.
Fasteignamat samtals
298.000 kr.
Brunabótamat
2.170.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1956
141.6 m2
Fasteignanúmer
2141955
Númer hæðar
1
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
910.000 kr.
Fasteignamat samtals
910.000 kr.
Brunabótamat
4.390.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1951
59.1 m2
Fasteignanúmer
2141956
Númer hæðar
1
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
300.000 kr.
Fasteignamat samtals
300.000 kr.
Brunabótamat
2.260.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1958
41.5 m2
Fasteignanúmer
2141957
Númer hæðar
1
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
346.000 kr.
Fasteignamat samtals
346.000 kr.
Brunabótamat
1.670.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakki
Skoða eignina Bakki
Bakki
561 Varmahlíð
476.8 m2
Jörð/Lóð
Fasteignamat 626.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Vestari-Hóll Flókadal
Vestari-hóll Flókadal
570 Fljót
550.2 m2
Jörð/Lóð
142 þ.kr./m2
78.000.000 kr.
Skoða eignina Stóru-Reykir Flókadal Skagafirði
Stóru-reykir Flókadal Skagafirði
570 Fljót
550.5 m2
Jörð/Lóð
163 þ.kr./m2
90.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin