Falleg, björt og vel skipulögð 4 herbergja endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð með palli í góðu fjölbýlishúsi. Staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Norðlingaholti nálægt allri helstu þjónustu og útivistarsvæðum.
** 3 svefnherbergi
** Skjólgóður pallur
** Sérinngangur
** Heimastjórnunarkerfi og innbyggðir hátalarar í stofu og baðherbergi
** Fjölskylduvæn staðsetning
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 112,6m2, þar af geymsla 8,4m2.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum skápum. Flísar á gólfi.
Eldhús er með fallega hvíta innréttingu, svörtum vaski og nýlegum blöndunartækjum, eyju með bakaraofni og helluborði. Kvartssteinn er á borðum. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með útgengi á skjólgóða verönd sem vísar til suð-austurs. Niðurtekin loft með innfelldri lýsingu og innbyggðum hátölurum. Heimastjórnunarkerfi frá Came sem stýrir bæði lýsingu og gardínum. Parket á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu, kvartssteini í borðplötu, innfelldri led-lýsingu yfir spegli, handklæðaofni, upphengdu salerni og baðkari/sturtu. Niðurtekin loft með innfelldri lýsingu og innbyggðir hátalarar.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðu skápaplássi og baklýstum rúmgafli. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með skápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með skápum. Parket á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með opnanlegum glugga, góðri innréttingu og vaski. Flísar á gólfi.
Geymsla, 8,4m2 sérgeymsla í sameign í kjallara.
Bílastæði í bílageymslu undir húsi fylgir eigninni.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Hurðar og gólfefni, parket og flísar, voru endurnýjuð í íbúðinni árið 2025.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.