Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í sölu Setberg 7, 815 Þorlákshöfn: Einstaklega fallegt, rúmgott og smekklega innréttað sex herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr, stórum suðaustur sólpalli og heitum potti á góðum stað í Þorlákshöfn.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan sem utan og einkennist af vönduðum innréttingum, fallegu efnisvali og skemmtilegu skipulagi.Birt heildarstærð eignarinnar samkvæmt fasteignaskrá er 206.5 fm. og þar af er íbúðarhluti 147,5 fm. og bílskúr 59 fm. Hluta bílskúrsins hefur verið breytt í tvö svefnherbergi og gestasnyrtingu og er bílskúrinn nú um 30 fm að stærð. Íbúðarrými í núverandi notkun er því áætlað um 176,5 fm.
Til viðbótar er um 60 fm geymslurými undir húsinu með um 1,60 m lofthæð, sem ekki er innifalið í birtri heildarstærð eignarinnar.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í tvö anddyri, eldhús, stofu / borðstofu, sjónvarpshol, 3 - 4 svefnherbergi, svefnherbergisgang, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og bílskúr. Að auki er rúmgóður geymslukjallari undir húsinu.
Lýsing eignar:Anddyri á austurhlið: Bjart og rúmgott anddyri með fatahengi og steinflísum á gólfi.
Anddyri á vesturhlið: Með fatahengi og steinflísum á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt, eikar plankaparket og steinflísar á gólfi.
Eldhús: Einstaklega fallegt og rúmgott eldhús með sérsmíðaðri hvítri innréttingu, stórri eyju og góðu skápa- og vinnuplássi. Steinborðplötur, eldavél og vaskur í eyju, bakaraofn í vinnuhæð og gufugleypir yfir eldavél. Tvöfaldur ísskápur fylgir eigninni. Eikarplankaparket er á veggjum og steinflísar á gólfi. Innfelld lýsing í lofti og gólfhiti. Úr eldhúsi er útgengt á stóran sólpall til suðausturs með heitum potti og þaðan í fallegan, gróinn garð.
Sjónvarpshol: Rúmgott og notalegt sjónvarpshol á milli stofu og eldhúss. Frá sjónvarpsholi er gengið niður um lítils háttar hæðarmun inn í eldhús. Steinflísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Einstaklega rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi. Rýmið var upphaflega tvö svefnherbergi og er möguleiki á að skipta því aftur í tvö herbergi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Steinflísar á gólfi.
Baðherbergi: Einstaklega smekklega hannað baðherbergi með hvítri innréttingu og skápum, innbyggður salerniskassi, baðker og sturta. Steinflísar á gólfi og falleg sjónsteypuáferð á veggjum. Gólfhiti.
Gestasalerni: Smekkleg gestasnyrting með svartri innréttingu, salerni með innbyggðum vatnskassa og handklæðaofni. Steinflísar á gólfi og flísar á veggjum að hluta.
Þvottahús: Rúmgott og vel skipulagt þvottahús með koksgráum innréttingum, vaski, góðu vinnuborði og handklæðaofni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Steinflísar á gólfi.
Bílskúr / geymsla: Byggður árið 1976 og er skráð stærð hans 59 fm. Hluta bílskúrsins hefur verið breytt í íbúðarrými og er bílskúrinn nú um 30 fm að stærð. Innangengt er úr húsinu. Bílskúrshurðaopnari, gryfja og málað gólf. Úr bílskúr er stigi niður í um 60 fm geymslurými undir húsinu.
Byggður árið 1976 og er skráð stærð hans 59 fm. Hluta bílskúrsins hefur verið breytt í íbúðarrými og er bílskúrinn nú um 30 fm að stærð. Innangengt er úr húsinu. Bílskúrshurðaopnari, gryfja og málað gólf. Úr bílskúr er stigi niður í um 60 fm geymslurými undir húsinu.
Geymslukjallari: Um 60 fm geymslurými með um 1,60 m lofthæð sem býður upp á mikið geymslupláss. Rýmið er ekki innifalið í birtri heildarstærð eignarinnar.
Lóð: Skjólgóð og fallega 758,5 fm. lóð. Framan við húsið er lóðin hellulögð að mestu leit, hellur með fram húsinu og gras, á baklóð er stór suðaustur sólpallur með heitum potti.
Innréttingar: Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Fagus, að undanskildum fataskápum sem eru frá Ikea.
Að sögn seljenda hefur húsið fengið mikið viðhald í gegnum tíðina að innan sem utan m.a.:
Að utan: * Nýr skjólveggur á lóðamörkum á baklóð 2026.
* Nýtt grillskýli og sólpallur pússaður og málaður 2026.
* Hús klætt að utan 2019.
* Skipt um þakjárn og rennur 2018.
* Skipt um hita- og neysluvatnslagnir 2018.
* Frárennslislagnir (klóak) myndað 2014.
* Gert við múr á ytra byrði hússins 2008.
* Skipt um alla glugga nema stofuglugga 2007. Plastgluggar í viðbyggingu og hurðar.
Að innan: * Eldhús endurnýjað. Nýr ofn og ísskápur 2022.
* Baðherbergi endurnýjað 2014 og gestasalerni endurnýjað 2021.
* Þvottahús endurnýjað 2021.
* Innihurðar í svefnherbergi og bílskúr endurnýjaðar 2022 og rennihurðar í hjónaherbergi og baðherbergi 2019.
* Nýir skápar í svefnherbergjum 2019.
* Nýjar plast útihurðar og plast gluggar í eldhúsi, gangi og herbergjum 2007.
Hér er um að ræða einstaklega fallegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, rúmgóðum og björtum vistarverum, miklu geymsluplássi og glæsilegu útisvæði. Eignin sameinar kosti góðrar staðsetningar, skemmtilegs skipulags og notalegs fjölskylduheimilis. Eign sem sannarlega er vert að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er nýr leikskólinn Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.