Fasteignasalan TORG kynnir: Rúmgott þriggja hæða parhús ásamt bílskúr + aukaíbúð. Alls er húsið 275,7fm sem skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, borðstofu og stofu, þrjú rúmgóð herbergi, aðalbaðherbergi og sjónvarpshol auk geymslu og þvottaherbergis og 2ja - 3ja herb. auka-íbúð með sérinngangi. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isSækja söluyfirlit
HÉRNánari lýsing:
Aðalhæð: Komið er inn í forstofu á miðhæð, flísar á gólfi og góðir skápar. Inn af er flísalagt gestasalerni með opnanlegu fagi. Inn úr fostofu er komið inn á parketlagða aðalhæðina, steyptur tepplagður stigi upp á efri hæð. Eldhús var endurnýjað árið 2017, sérsmíðuð innrétting, steinn á borðum, span helluborð, vifta og ofn. Tvöfaldur ísskápur fylgir og innbyggð uppþvottavél. Opið er inn í stofu og borðstofu. Útgengt er á svalir.
Efri hæð: Parketlagt sjónvarpshol, flísalagt baðherbergi með sturtu og hornbaðkari, tvö góð parketlögð barnaherbergi með góðum fataskápum, parketlagt hjónaherbergi með góðum fataskápum. Útgengi út á svalir og innangengt á baðherbergi.
Neðri hæð: Steyptur teppalagður stigi er niður á neðri hæð. Búið er að stúka af með léttum vegg 2-3ja herbergja íbúð með sér inngangi. Einnig er gott geymsluherbergi og stórt þvottaherbergi með innréttingu og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi. Garður er í góðri rækt, með fjölbreyttum og fallegum plöntum og trjám, upphækkað matjurtabeð. Hellulögð upphituð stétt er niður með húsinu og fyrir aftan hús – inngangur í auka íbúð. Timburpallur í bakgarði er kominn til ára sinna og þarfnast endurnýjunar. Heimkeyrsla er snyrtileg, og þakskyggni yfir bílastæði fyrir framan bílskúrinn. Bílskúr er 24,7fm með góðum gluggum.
Samantekt: Um er að ræða gott fjölskydluhús með auka íbúð í vinsælu hverfi í Reykjavík, góðum bílskúr og fallegum garði. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Búið að endurnýja 8 glugga í húsinu. Eldhús endyrnýjað 2017. Viðhald á þaki, mála þak og húsið allt fyrir nokkrum árum. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.