Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt raðhús á einstökum útsýnisstað í Garðabæ. Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 252,3fm og þar af er bílskúr 22,7fm. Húsið er 6. herbergja raðhús á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum og tveimur stofum. Húsið er mjög vandað, staðsteypt, einangrað að utan og með vandaðri álklæðningu. Loftskiptikerfi er í húsinu, mikil lofthæð, gólfhitastýring, hjónasvíta og gólfsíður horngluggi án pósta í miðju er í stofunni sem gefur eigninni einstakan svip og glæsilegt útsýni. Tveir afhendingarmöguleikar eru í boði, annars vegar fullbúið hús að innan kr. 245.000.000,- Hins vegar tilbúið til innréttingar, lóð frágengin að framan, hellulagt með hitalögn og grófjöfnuð lóð að aftan, Verð tilbúið til innréttingar kr. 215.000.000,- sjá nánar skilalýsingu seljanda. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir, fasteignasali í GSM 820-2222, netfang hafdis@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106, netfang sigurdur@fstorg.isEignin skiptist eftirfarandi: Komið inn á efri hæð. Gott anddyri með fataskáp, forstofu svefnherbergi, gestasalerni, búr og eldhús ásamt borðstofu og stofu, með útgengi út á svalir.ð Glæsilegt útsýni yfir golfvöll GKG yfir til Vífilsstaðavatns, til suð suð-vesturs. Stigi niður á neðri hæð. Neðri hæð: Gangur með útgengi út í garð. Sjónvarpshol, baðherbergi, Þvottaherbergi, 2. svefnherbergi auk hjónasvítu með baðherbergi og fataherbergi, og útgengi út í garð / verönd.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir, fasteignasali í GSM 820-2222, netfang hafdis@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106, netfang sigurdur@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.