** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og falleg 83,0 m2, 3ja herbergja endaíbúð á 2.hæð, ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Vefarastræti 11 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, geymslu innan íbúðar, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Svalir í suðurátt. Búið er leggja rafmagn að bílastæði í bílakjallara fyrir bílahleðslustöð. Einnig er búið er að setja upp sameignilegar hleðslustöðvar á lóð. Frábær staðsetning rétt við grunn- og leikskóla, Helgafellsskóla, ekki þarf að fara yfir götu til að fara í skólann. Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Stutt í strætóstoppistöð.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent.
Nánari lýsing:Gengið er inn í íbúðina af sameiginlegum stigagangi.
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og með parketi í gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt.
Eldhús er með innréttingu frá HTH. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu frá HTH, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gluggi er á baðherbergi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi
Barnaherbergi er með fataskáp og parketi á gólfi.
Geymsla er með parketi á gólfi og glugga. Er innan íbúðar
Bílastæði í lokaðri bílageymslu, merkt B14, fylgir eigninni. Rafmagn er til staðar í bílakjallara og því möguleiki á að fá hleðslustöð í bílastæði í bílakjallara.
Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu á lóðinni.
Fyrirhugað fasteignamat árið 2026 er kr. 68.550.000,-
Verð kr. 70.900.000,-