Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna í einkasölu: Klausturhólar C-gata 17, 805 Selfossi. Mjög vel skipulagt, hlýlegt og heillandi
mikið endurnýjað 91 fm sumarhús / heilsárshús (frístundahús ekki lögbýli) í hinu vinsæla Grímsnesi á
rúmlega 1 hektara eignarlóð (10.800fm) staðsett við enda götunnar.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu í dag en voru áður fjögur. Húsið er á skipulögðu frístundahúsasvæði sem er með
aðgangsstýrðu rafmagnshliði (fjarstýring/ sími) og liggur malarvegur að innkeyrslu þess. Það er
nýlegur stór rafmagnspottur með nuddi auk
viðarveranda til tveggja átta, en auk þeirra er ein lítil verönd aftan við hús.Náttúran í kring sér um sig sjálf utan grasspildu neðan við pallinn sem þarf að slá. Reisuleg tré eru á lóðinni sem hafa náð góðri hæð og fleiri nýrri komin af stað.
Fasteignamat 2026 verður kr. 50.200.000. Húsið getur verið laust fljótlega. Öll þjónusta er í þægilegri fjarlægð, Selfoss 20 mínútur, Kerið 5 mínútur (4,2 km), Minni borgir 5 mínútur, Reykjavík 50-55 mín. Einnig eru fjöldi golfvalla í nærumhverfi, sundlaug og ýmsir þjónustuaðilar.
Vegvísir að húsinu: Frá Reykjavík/ Selfossi komið akið veg 35 Biskupsstungnabraut að Búrfellsvegi nr 351 til vinstri og beygið inn á þann veg. Akið fram hjá gámasorpalosunarstöð á vinstri hönd, beygið svo til hægri á fyrsta afleggjara. Þar er rafmagnshlið og fylgið leiðbeiningum þar.
Þið akið inn veginn og beygið 3ja afleggjara til vinstri og svo aftur strax til vinstri við trén upp innkeyrsluna að húsinu.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT HÉR** **SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍÐRI SÝN MEÐ OG ÁN HÚSGAGNA** (ýtir á takkann niðri í vinstra horni þar sem er stóll með / merki yfir)Núverandi skipulag eignar: Gangur, eldhús, stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla, upphitaður geymsluskúr, gróðurhús og kaldur geymsluskúr
Nánari lýsing eignar:Góð aðkoma er að húsinu, pláss er fyrir þónokkra bíla við húsið og innkeyrslu. Langt er milli húsa og því gott næði við húsið. Harðparket er á húsinu utan baðherbergis sem er með flísum. Málað gólf er á þvottahúsi.
Gangur: Gengið er inn á gang í miðrými hússins.
Eldhús: er á hægri hönd við gang, útihurð er einnig á eldhúsi. Rúmgóð nýleg innrétting með nýlegum tækjum frá AEG, innbyggður kælir, innbyggð uppþvottavél, ofn, spanhelluborð, tækjaskápur og gluggar til austurs og suðurs.
Þvottahús/geymsla: Rúmgott þvottahús/geymsla með skolvaski. Þar er ný rafmagnstafla og hitakútur er þar einnig. Sjá má þar enda á hitaveitulögnum sem eru klárar í hluta hússins. Hitavír er á vatnsleiðslum.
Baðherbergi er við gang miðrýmis, til vinstri frá inngangi. Flisar á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug, upphengt wc, sturta og gluggi til norðurs. Gólfhiti er í þessu rými.
Stofa er svo við enda gangsins. Þaðan er útgengt á pall mót suðri. Gluggar á suður og vestur hlið hússins.
Herbergi 1: Rúmgott með góðum skápum og gluggum til norðurs. Framan við það herbergi er lítil verönd, ekki aðgengileg úr herberginu. Annar glugginn er með flóttaleið.
Herbergi 2: Minna herbergi með glugga til vesturs en er þó með tvíbreiðu rúmi í dag. Væri einnig tilvalin sjónvarpsstofa. Rennihurð.
Herbergi 3: Rúmgott herbergi sem nýtt er í dag sem geymsla. Gluggar til norðurs. Þetta herbergi var upprunalega 2 lítil herbergi.
Geymsla: Góð ca 12 m2 upphituð geymsla með nettri uppdraganlegri innkeyrsluhurð (fjórhjólahurð)
Geymsluskúr: Um 6 fm köld geymsla er á verönd er komið er að húsinu.
Gróðurhús: Um 10 fm, er á lóðinni. Er við innkeyrslu.
Annað:Lóðin: Eignarlóð. Alls 10800 fm. Innkeyrslan er malarlögð, nettur grasblettur er sunnan við húsið og töluverður gróður er á lóðinni,
Verönd: Góð viðarverönd er við húsið. Fyrir framan stofuna er aflokuð sólarverönd með nýlegumheitur rafmagnspottur með nuddi og síðan er verönd alveg meðfram 2 hliðum hússins.
Kynding; Húsið er kynnt í dag með tveimur varmadælum en búið er að koma ofnalögnum fyrir í hluta hússins. Gólfhiti á baðherbergi og ofn í geymslu aftan við húsið.
Rafhleðslustöð: Ný bílahleðslustöð er uppsett.
Framkvæmdasaga núverandi eigenda:2025: Ný rafhleðslustöð fyrir bíla
2024: 5x nýir Skanva gluggar settir í húsið því eigendur vildu stærri opanleg fög með flóttaleiðum að hluta.
2023: Ný og stærri rafmagnstafla því styrktu og bættu við rafmagn í eldhúsi og fleiri staði.
2021-2022: Baðherbergi endurnýjað, lagnir, flísar, innréttingar, blöndunartæki, salererni, Walk in sturta, handlaugrafmagnshiti í gólf,
2021: Hús málað að utanverðu sem og þak
2021-2022: Eldhús endurnýjað, lagnir, innrétting frá Ikea, tækjaskápur sérsmíðaður, AEG eldhústæki, varmadæla,
2021: Nýr
Heitur pottur með nuddi (rafmagnspottur)
2022: Nýtt parket sett á húsið allt, svo öll gólefni endurnýjuð.
Rekstrarkostnaður 2025:Fasteignagjöld: 302.925 (33.658 kr í 9 mánuði) (tæming á rotþró er inni í fasteignagjöldum)
Rafmagnsnotkun: 22.000-24.000 á mánuði.
Rarik: um 22.000 kr. á mánuði Þristurinn sumarhúsafélag landeigenda: 2x20.000 á ári)= 40.000 á ári. (mokstur og viðhald vega, girðingar, vegahlið)
Brunatrygging 71.760 kr. á ári. ATH! Nýlega var sótt um endurmat á brunabótamati, sem er ekki komið fram, en það fór síðast fram 2001, og búið að gera miklar endurbætur á húsinu frá 2021. Brunatrygging mun því hækka lítillega á ári er nýtt mat liggur fyrir.
Lán: Ekki er hægt að skrá lögbýli og lögheimili í þessu húsi sem fellur undir frístundahús og lög um þau. Lánakjör eru skv. þeim flokki hjá lánastofnun. Ekki eru veitt íbúðalán vegna kaupa á frístundahúsi, heldur sumarhúsalán/önnur lán. Sjá t.d. hér:
Arion.
Allar nánari upplýsingar veita;Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og í netfanginu
gudbjorg@remax.is Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og í netfangingu
gylfi@remax.is