Fasteignaleitin
Skráð 31. júlí 2026

Keilusíða 2 íbúð 303

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
74.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
48.500.000 kr.
Fermetraverð
650.134 kr./m2
Fasteignamat
38.750.000 kr.
Brunabótamat
40.600.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2148184
Landnúmer
148503
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Tenglar og rofar endurnýjaðir 2026
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Endurnýjað sumar 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steyptar svalir, til vesturs
Lóð
4,6829
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags dags. 28.7.2026 auk fylgigagna. Það er búið að panta nýja glugga á stafnana á húsinu. Kostnaðarskipting við endurnýjun á gluggum er sundurliðuð niður á þær íbúðir sem verður skipt um glugga í og þátttöku annarra íbúða í húsinu í því sem telst vera sameign í meðfylgjandi skjali en það var samþykkt að skipta um glugga á stöfnum hússins til að byrja með.
Gallar
Eignin er ekki í samræmi við upprunalegar teikningar. Eldhúsi hefur verið breytt í svefnherbergi, sjá meðfylgjandi teikningu frá seljanda.
Utanhúss þarfnast húsið múrviðgerða og málningar og hefur það verið rætt í húsfélaginu.
Fasteignasalan Hvammur 466-1600

Keilusíða 2 íbúð 303 - Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýli í Síðuhverfi - Stærð 74,6 m² 

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, þvottahús og tvö svefnherbergi. Sér rúmgóð geymsla er í kjallara.

Forstofa er með harðparketi á gólfi.
Stofa er björt með harðparketi á gólfi og þaðan er gengið út á góðar vestur svalir.
Eldhús er með nýrri innréttingu með hvítum neðri skápum og dökkum efri skápum. Innfelld uppþvottavél.
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi, fíbó plötum á hluta veggja og innréttingu með handlaug. Vegghengt wc, handklæðaofn og baðkar með sturtutækjum.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfum og í öðru þeirra er nýr fataskápur.
Þvottahús er með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Sér geymsla í kjallara er rúmgóð með vegghillum, skráð 10,4 m².

Annað
- Eldhúsi skv. upphaflegu skipulagi innan eignar hefur verið breytt í svefnherbergi og eldhús fært fram í opið rými með stofunni.
- Þak var endurnýjað í sumar (2026)
- Baðherbergi og eldhús endurnýjað (2026)
- Nýjar innihurðir og gólfefni (2026)
- Skipt hefur verið um rofa og rafmagnstengla (2026)
- Loftaklæðning endurnýjuð að hluta (2026)
- Íbúðin er nýmáluð að innan auk þess sem gluggar hafa verið málaðir.
- Innbú getur fylgt með við sölu eignar.
- Ljósleiðari er kominn inn.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
- Vel staðsett eign með góðu útsýni, stutt í leik- og grunnskóla.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/07/202533.900.000 kr.32.700.000 kr.74.6 m2438.337 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skarðshlíð 14 íbúð 301
Efsta hæð
Skarðshlíð 14 íbúð 301
603 Akureyri
94.7 m2
Fjölbýlishús
413
527 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 16e
Tjarnarlundur 16e
600 Akureyri
82.8 m2
Fjölbýlishús
312
603 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkjartún 20 íbúð 104
Stekkjartún 20 íbúð 104
600 Akureyri
87.2 m2
Fjölbýlishús
312
705 þ.kr./m2
61.500.000 kr.
Skoða eignina Víðimelur 58
Efsta hæð
Skoða eignina Víðimelur 58
Víðimelur 58
107 Reykjavík
64.8 m2
Fjölbýlishús
311
955 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin