LIND fasteignasala kynnir bjarta og einstaklega vel staðsetta fjögurra herbergja 78,6 fm íbúð á 4. hæð við Hverfisgötu í 101 Reykjavík.
Íbúðin er skráð 78,6 fm skv. Þjóðskrá og henni fylgir geymsla í sameign. Samkvæmt seljanda fóru verulegar endurbætur fram á ytra byrði hússins 2021, þ.e. þak yfirfarið og lagfært, húsið múrviðgert og málað að utan, skipt um gler eftir þörfum og gluggar yfirfarnir og málaðir. Auk þess var stigagangurinn teppalagður og málaður. Nýbúið að skipta um skólplagnir, en lokafrágangur stendur yfir. Þvottahús í sameign á jarðhæð, sameiginlegt geymslurými á efstu hæð og sameiginlegar þaksvalir. Öflugt húsfélag sem stendur vel fjárhagslega.
Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur.
Eignin er í útleigu og það stendur til boða að yfirtaka núverandi leigusamning.Nánari lýsing:
Forstofa/miðrými: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, sturta.
Svefnherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi III: Dúkur á gólfi.
Eldhús: Flísar á gólfi, hvít innrétting.
Borðstofa/Stofa: Flísar á gólfi, útgengt á svalir.
Geymsla: Staðsett á efstu hæð ásamt sameiginlegu geymslurými.
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir löggiltur fasteignasali í 847 8584 / tara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.