Fasteignaleitin
Opið hús:04. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 30. okt. 2026

Framnesvegur 22

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
90.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
1.055.006 kr./m2
Fasteignamat
90.650.000 kr.
Brunabótamat
48.050.000 kr.
Mynd af Jason Kristinn Ólafsson
Jason Kristinn Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Húsið er eftir

Húsameistari ríkisins.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1922
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2000753
Landnúmer
100264
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Ástand ekki vitað, það virkar
Frárennslislagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Upprunalegt og endurnýjað
Þak
Eldra þak
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 – jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna Framnesveg 22 - 101 Reykjavík – sögulegt og heillandi raðhús í gamla Vesturbænum
Fallegt og áhugavert 90,9 fm raðhús á þremur hæðum við Framnesveg í gamla Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið nýtur einstakrar staðsetningar í rólegu og grónu umhverfi, í göngufæri við miðborgina, Vesturbæjarlaug, skóla, leikskóla, verslanir og fjölbreytta þjónustu.

Eignin er með sérinngangi og skiptist í anddyri, eldhús og stofu á miðhæð, tvö svefnherbergi og lítið baðherbergi með salerni og handlaug á efstu hæð og hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og sérgarð á neðri hæð.

Á miðhæð er bjart og notalegt alrými þar sem eldhús og stofa mynda samfellda heild. Úr stofunni er horft út yfir bakgarðinn. 
Á efstu hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi með kvistgluggum og aukinni lofthæð. Þar er einnig lítið baðherbergi með salerni og handlaug.
Á neðri hæð er rúmgott hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og útgengi í sérgarð. Garðurinn hefur verið tekinn í gegn og endurnýjaður á snyrtilegan og aðlaðandi hátt. Garðurinn er afgirtur og býður upp á notalegt og skjólgott útisvæði.
Á undanförnum árum hefur verið ráðist í umfangsmikið viðhald á húsinu. 
Frárennslislagnir voru endurnýjaðar, baðherbergi tekið í gegn og sprunguviðgerðir framkvæmdar.

Söguleg sérstaða
Framnesvegur 22 er eitt hinna sögufrægu Bankahúsa við Framnesveg, teiknað af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, og byggt árið 1922. Bankahúsin eru merkilegt dæmi um íslenska byggingarsögu þar sem íslenskt burstabæjarform mætir áhrifum frá breskri húsagerð.
Húsin voru reist að frumkvæði Landsbankans sem tilraun með nýja gerð íbúðarhúsnæðis, þar sem sjálfstæðar íbúðir voru sameinaðar í heildstæða raðhúsabyggð með sérinngangi og garði. Framnesvegur 22 hefur að mestu varðveitt sitt upprunalega yfirbragð og húsið er friðað að utan.

Stutt í þjónustu, skóla, sundlaug, golfvöll, veitingastaði og miðbæinn í Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um Framnesveg 22 gefur: Jason Kristinn Ólafsson í netfangið jason@betristofan.is eða í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/02/202154.850.000 kr.60.000.000 kr.90.9 m2660.066 kr.Já
28/10/201631.800.000 kr.43.700.000 kr.90.9 m2480.748 kr.Já
23/11/201023.700.000 kr.23.000.000 kr.90.9 m2253.025 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
312
1026 þ.kr./m2
94.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
72,9 m2
Fjölbýlishús
211
1084 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
91,7 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
92,2 m2
Fjölbýlishús
312
998 þ.kr./m2
92.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin