Fasteignaleitin
Skráð 12. okt. 2026

SPÁNAREIGNIR - Los Balcones

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
175 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
81.400.000 kr.
Fermetraverð
465.143 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
101121026
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já
Upphitun
Kæling / Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *STÓRGLÆSILEGT NÝLEGT EINBÝLISHÚS Í LOS BALCONES* *254 FM SÓLRÍK HORNLÓÐ MEÐ UPPHITAÐRI SUNDLAUG* *BÍLSKÚR* *ÚTIELDHÚS OG STÓRAR SVALIR* *AFHENDIST MEÐ HÚSGÖGNUM*

Húsið er vel skipulagt og í mjög góðu ástandi, einungis nokkurra ára gamalt og einn eigandi frá upphafi. 
Á aðalhæð er rúmgott eldhús, skemmtilega opið við stofu og borðstofu. Frá stofu er gengið út í garðinn, sem er stór og viðhaldslítill, og hægt að njóta sólarinnar frá morgni til kvölds. Á hæðinni er svefnherbergi með sér baðherbergi, ásamt fataherbergi. Á hæðinni er einnig gestasnyrting með glugga. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, bæði björt og rúmgóð,  með fataskápum og útgengi út á svalir. Þar er einnig baðherbergi með sturtu. Stórar sólríkar svalir eru á hæðinni. Frábært útsýni.
Á neðri hæð er stórt alrými, sem býður upp á ýmsa nýtingarmöguleika, en er nú nýtt sem sjónvarpsrými. Þar er baðherbergi með sturtu. Frá rýminu er innangengt í bílskúrinn, sem er mjög rúmgóður. Þar er hægt að leggja bílnum en samt hafa nóg geymslupláss og jafnvel vinnuaðstöðu. 

Lóðin er 254 fm og snýr vel gagnvart sól. Sundlaugin er afgirt sem veitir öryggi, hún er upphituð og með yfirbreiðslu. Stórt útiheldhús með ísskáp, vínkæli og vaski. 
Um er að ræða stórglæsilega eign sem hentar vel til búsetu allt árið, eða sem sumarleyfisstaður þar sem nóg pláss er fyrir alla.

Nánari upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is sími 0034 615 112 869


Los Balcones er gróið og vinsælt íbúðahverfi, vel staðsett í nágrenni við hin fallegu bleiku saltvötn Torrevieja og aðeins örfáar mínútur frá Torrevieja háskólasjúkrahúsinu. Stutt er í fallegar sandstrendur, golfvelli, verslunarmiðstöðvar, veitingastaði og alla helstu þjónustu.
Hér fer saman friðsælt umhverfi, góð staðsetning og notalegur lífsstíll við Miðjarðarhafið. Los Balcones er því frábær kostur fyrir þá sem leita að eign á Spáni, hvort sem er til eigin nota eða fjárfestingar.

Verð 590.000 Evrur. (81.400.000ISK miðað við gengi 1E=138ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílskúr, útsýni, golf, útieldhús, upphituð sundlaug,
Svæði: Costa Blanca, Los Balcones, Torrevieja,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101121026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sæviðarsund 34
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:21. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Sæviðarsund 34
Sæviðarsund 34
104 Reykjavík
181,1 m2
Raðhús
623
938 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Seiðakvísl 32
Á einni hæð
Skoða eignina Seiðakvísl 32
Seiðakvísl 32
110 Reykjavík
185,7 m2
Einbýlishús
513
942 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Gnitaheiði 12A
Bílskúr
Skoða eignina Gnitaheiði 12A
Gnitaheiði 12A
200 Kópavogur
173,9 m2
Raðhús
514
804 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina BORGARHEIÐI 18
Á einni hæð
Skoða eignina BORGARHEIÐI 18
Borgarheiði 18
810 Hveragerði
161,8 m2
Einbýlishús
413
463 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin