VEGNA MIKILLA EFTIRPURNA TEK ÉG ÞAÐ FRAM AÐ EIGNIN VERÐUR EKKI SELD FYRIR OPIÐ HÚS
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D (ekki er þörf á frekari forriti)
RE/MAX í samstarfi við Guðnýju Þorsteins löggiltan fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega notaleg 5 herbergja íbúð á 2. hæð í fjórbýli með fallegu útsýni í Goðheimum 6, með eigninni fylgir bílskúr. Samkvæmt FMR er íbúðin
127,5fm auk
26,2fm bílskúrs
samtals 153,6fm. Við það bætist sér geymsla, þvottahús og þurkherbergi í sameign.
SMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDISEignin skiptist í eftirfarandi rými: Forstofugang, 4 svefnherbergi, herbergisgang, baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, litla geymsu (innan íbúðar), geymslu í sameign ásamt þvottahúsi og bílskúrs.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er í sameiginlegan stigagang með 3. hæð, hann er rúmgóður með góðum fataskáp, teppi er á gólfi.
Eldhús: Er með sér smíðaðri málaðri innréttingu sem nær upp í loft, gott skápa- og skúffupláss, bakaraofni í vinnuhæð, tengi er fyrir uppþvottavél ásamt góðum borðkróki. Korkur á gólfi.
Stofa: Léttur veggur aðskilur stofu og borðstofu, úr rúmgóðri stofu er virkilega fallegt útsýni en sjá má Snæfellsjökul og Esjuna á fallegum dögum. Parket á gólfi.
Borðstofa: Er rúmgóð með útgang út á góðar og skjólsælar svalir. Parket á gólfi.
Svalir: Snúa til suðvesturs og eru yfirbyggðar að hluta.
Herbergisgangur: Er rúmgóður góður með fataskáp. Parketdúkur á gólfi.
Herbergi 1: Er inn af alrými með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Herbergi 2: Er inn af herbergisgangi með fjórföldum fataskáp. Parket dúkur á gólfi.
Herbergi 3: Er inn af herbergisgangi með innbyggðum einföldum fataskáp. Parket dúkur á gólfi.
Herbergi 4 og 5: Er inn af herbergisgangi, búið er að taka niður vegg á milli þessarar herbergja og sameina í eitt stórt. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er með baðkari með sturtu í, vaski með skúffum undir, geymsluskáp ásamt handklæðaofni.
Geymsla: Lítil geymsla er innan íbúðar, en önnur og stærri er í sameign.
Þvottahús: Er í sameign ásamt góðu þurrkherbergi.
Bílskúr: Er við hlið hússins, 26,2fm að stærð með rafdrifinni hurð.
Lóð og garður: Húsið stendur á 727m gróinni lóð. Garðurinn er með fallegum trjágróðri ásamt grasfleti. Hiti er í plani fyrir utan.
Viðhald:
2021 - Baðherbergi endurnýjað að hluta: salerni endurnýjað, vaskur, innrétting og speglaskápur.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.