Fjárfesting Fasteignasala og Edda Svavarsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu
NAUSTAVÖR 46 KÓPAVOGI:
Gæsileg 3ja herbergja íbúð á 1.hæð, merkt 105 með einstöku sjávarútsýni í nýlegu álklæddu lyftuhúsi með bílakjallara, byggingarár: 2021.
Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð, merkt 105 í fallegu nýlegu álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 120,6 fm. Sérgeymsla í kjallara er 10,1 fm. Samtals er eignin því skráð 130,7 fm.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir, möguleiki á að tengja hleðslustöð.
Lokaðar austursvalir með viðarflísum.
Vandaðar glæsilegar innréttingar og fataskápar frá Brúnás, rafdrifnar gardínur frá Zenus, gluggatjöldum stýrt með appi.
Borðplötur úr Kvarts steini frá S. Helgasyni og eldhústæki frá AEG, innfelld loftljós í stórum hluta íbúðarinnar.
Gegnheilt niðurlímt parket frá Parketverksmiðjunni ásamt gólfhita á allri íbúðinni.
Tvö baðherbergi- annað innaf hjónasvítu með fataherbergi.
Geymsla og sameiginleg hjólageymsla er í sameign.
Einstakt útsýni úr stofu til norðurs yfir Fossvog, Nauthólsvík og Snæfellsjökul.
Allar nánari upplýsingar og pöntun á skoðun hjá:
Smári Jónsson, löggiltur fasteignasali, sími 864-1362 (smari@fjarfesting.is).
Nánari lýsing:
Á gólfum í allri íbúðinni (utan forstofu, eldhús og votrýma) er fallegt ljóst gegnheilt parket sem hefur verið niðurlímt.
Innfelld birtustillanleg loftljós í holi, gangi, hjónaherbergi, baðherbergjum og stofu.
Forstofa: Rúmgóð með stórum tvískiptum fataskáp. Flísalagt gólf.
Þvottahús: Inn af forstofu er rúmgott þvottahús með flísalögðu gólfi og vandaðri innréttingu.
Hol og gangur:Tengir saman íbúðarrýmin. Gangurinn nýtist jafnframt sem skrifstofurými.
Eldhús: Glæsileg innrétting frá Brúnás með Kvarts steini á borði (marmaraáferð). Vönduð AEG eldhústæki. Flísalagt gólf.
Stofa: Mjög björt með stórum gólfsíðum gluggum og einstöku útsýni yfir Fossvog, Nauthólsvík og í átt að Snæfellsjökli.
Baðherbergi: Inn af holi, flísalagt gólf og veggir. Sturta með glerþili og innbyggðum blöndunartækjum frá Tengi. Innrétting frá Brúnás.
Hjónasvíta: Rúmgóð með sér fataherbergi og innanengt á baðherbergi. Baðherbergið er flísalagt með sturtu, glerþili, innbyggðum blöndunartækjum frá Tengi og innrétting frá Brúnás.
Kjallari: Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni með tengi fyrir hleðslustöð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fjárfesting Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2500,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.