Miklaborg kynnir: Stórglæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr á eftirsóttum stað við Mánalind 10 í Kópavogi. Húsið er 235,7 fm, og skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, 2 baðherbergi, 6 svefnherbergi ásamt bílskúr sem er innangengur. Stór verönd og pallur umkringir húsið með einstöku útsýni. Aukin lofhæð prýðir húsið og þakgluggar sem gefur því mikla birtu. Frábær fjölskyldueign í vinsælu og eftirsóttu hverfi í Lindunum sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og íþróttastarf.
Nánari upplýsingar veita:
Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Nánari lýsing: Neðri hæð: Forstofa: Gengið er inn í forstofu sem er með dökkum flísum og fataskápum. Svefnherbergi: Rúmgott herbergi sem voru tvö herbergi, búið að breyta í eitt stórt svefnherbergi. (hægt að breyta aftur í tvö). Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa.
Bílskúr: Innangengur bílskúr sem er 32,9 fm Efri Hæð: Gengið er upp stiga á efri hæð hússins. Hjónaherbergi: Með fataskápum og útgengi út á stóran pall. Parket á gólfum.
Eldhús: Rúmgott eldhús með viðar innréttingum, steinn á borðum, mikið skápapláss, opnanlegt fag í eldhúsi. Parket á gólfum. Þvottahús: Inn af eldhúsinu er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum.Stofa: Björt og rúmgóð stofa með fallegu útsýni og gólfsíðum gluggum. Borðstofa:: Rúmgóð og björt borðstofa með útgengi út á svalir. Baðherbergi: Físalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtu. Gluggi á baðherberginu, upphengd klósett, hvít baðherbergis- innrétting, handklæðaofn.Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með stiga upp á svefnloft. Parket á gólfum.Svefnherbergi: Aukin lofthæð og fataskápar. Parket á gólfum. Svefnherbergi: Aukin lofthæð. Parket á gólfum. Svefnherbergisgangur: Með útgengi út á pall.
Nánari upplýsingar veita:
Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
210 | 255,7 | 193,9 | ||
230 | 233,8 | 93,3 | ||
260 | 232,6 | 138,9 | ||
700 | 213,5 | 86 | ||
200 | 266,8 | 168 | ||
200 | 82,9 | 63,9 |