Kasa fasteignir 461-2010.
Hlíðarmói 9 - Endaíbúð - Glæsileg 4 herbergja 155,1 fm raðhúsaíbúð með bílskúr í byggingu í Móahverf - Íbúðin selst fullbúin og áætlaður afhendingartími er september 2026. Byggingarverktaki er HeiðGuðByggir ehf.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpshol, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Það helsta:
- Húsið er staðsteypt með clt þaki.
- Borðplötur úr kvartssteini eru í eldhúsi og á baðherbergi.
- Vandaðar dökkar innréttingar og fataskápar frá Tak innréttingum.
- Allar innihurðar eru hvítar með svörtum handföngum.
- Innfelld lýsing í loftum með plejd ljósastýringu.
- Öll loft eru klædd með dúk nema í bílskúr.
- Loftskiptikerfi.
- Vínylparket og flísar á gólfum og epoxy í bílskúr.
- Steypt verönd með niðurfalli, útiljósum og rafmagnstenglum. Gert er ráð fyrir heitum potti á verönd.
- Bílaplan er steypt með snjóbræðslu.
- Sorptunnuskýli fyrir þrár tunnur fylgir hverri íbúð.
Forstofa: Er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Þar er sérsmíðuð innrétting með spanhelluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Borðplötur úr kvarssteini. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu.
Stofa og eldhús: Mynda gott alrými þar sem eru gólfsíðir gluggar og vínyl parket á gólfi, rennihurð er út á verönd frá stofu.
Baðherbergi: Eru tvö innan eignar. Aðal baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, sérsmíðari innréttingu með borðplötu úr kvarssteini, upphengdu salerni og sturtu. Inn af hjónaherbergi er annað baðherbergi sem er í sama stíl.
Svefnherbergi: Eru þrjú, öll með vínyl parketi á gólfi, innfelldri lýsingu í loftum og fataskápum. Hjónaherbergi er með fataherbergi og baðherbergi inn af.
Sjónvarpshol: Er með vínyl parketi á gólfi.
Þvottahús: Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr. Þar verða flísar á gólfi og innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og ásamt skolvaski.
Bílskúr: Er skráður 29,2 fm að stærð, með epoxy efni á gólfum og rafdrifinni innkeyrsluhurð. Bílastæði og stétt eru með snjóbræðslu, lokað kerfi með innspýtingu. Tvö steypt bílastæði fylgja hverri íbúð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla inní bílskúr.
Athugið að allar þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga.
Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.
Allt efni er birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.