Fasteignaleitin
Opið hús:03. maí kl 16:00-16:30
Skráð 28. apríl 2026

Furugrund 46

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
87.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
798.857 kr./m2
Fasteignamat
63.900.000 kr.
Brunabótamat
50.350.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Tómasdóttir
Jóhanna Kristín Tómasdóttir
löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2060763
Landnúmer
114420
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
03
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Yfirfarið og lagfært
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og töluvert endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með aukaherbergi með aðgangi að salerni í kjallara, auk ca. 6 fm geymslu (sem ekki er skráð í fermetratöluna) á fjölskylduvænum og vinsælum stað Fossvogsmegin í Kópavogi. Merkt bílastæði fyrir utan húsið. Íbúðin skiptist í 3ja herbergja íbúð, skráð 75,4 fm., auk 12,1 fm. herbergi á sameiginlegum gangi með sameiginlegum aðgangi að salerni í kjallara. Þá fylgir íbúðinni óskráð geymsla, ca. 6 fm, samtals, 93,5 fm. Íbúðin er öll nýlega máluð, búið er að endurnýja alla ofna og nýlega sett ný gólfefni á svefnherbergi og eldhús. Þá hefur eldhúsið verið endurnýjað og/eða lagað að mestu.. Allt húsið málað að utan 2024. Sameiginlegur garður með stórri suður grasflöt bak við húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing:

Forstofugangur:  Með fatahengi. Flísar við inngang en síðar parket.
Eldhús: Með hvítri innréttingu að hluta til með nýjum skápaeiningum eða sprautulökkuðum skáphurðum. Nýleg borðplata, vaskur og blöndunartæki og gólfefni endurnnýjað. 
Stofa: Rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu. Gólfefni er upprunalegt gegnheilt parket sem hefur verið slípað og massað. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með fjórföldum fataskáp. Nýlegt harðparket á gólfi. 
Barnaherbergi: Gólfefni er upprunalegt gegnheilt parket sem hefur verið slípað og massað. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með baðkari og upphengdri sturtu og innréttingu við vask. Nýleg blöndunartæki og vaskur.
Aukaherbergi í kjallara: 12,1 fm með aðgangi að sameiginlegu salerni á kjallaragangi. Nýleg gólfefni.
Sérgeymsla: Um 6 fm, ekki skráð í fermetratölu, staðsett í sameign í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi þar sem hver er með sýna vél en sameiginlegur þurrkari er í þvottahúsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 
Viðhald: Íbúðin öll máluð að innan 2024. Allir ofnar endurnýjaðir ársbyrjun 2025. Skipt um ofna og ofnkrana í sameign við útidyr í febrúar 2025. Skipt um gólfefni í hjónaherbergi, herbergi niðri og eldhúsi í nóvember 2024. Parket í stofu og barnaherbergi slípað og fest þar sem holt var undir í maí 2022 og aftur massað vorið 2023. Skiput um borðplötu, vask, blöndunartæki í eldhúsi og nýjar skápareiningar í kringum ísskáp 2024. Framhliðar á eldhússkápum sprautulakkaðar í byrjun árs 2026. Skipt um vask og blöndunartæki á baði í nóvember 2025. Lögð ný deiligrein í eldhús með auka öryggisboxi inn í vaskaskáp fyrir uppþvottavél og bakaraofn 2024. Skipt um innstungur 2024 í eldhúsi og svefnherbergi og þar sem þurfti. 2018 var skipt um opnanlegt fag og gler á baðherbergi, gler í svalahurð endurnýjað og opnalega fagið í stofunni yfirfarið og lagfært. Þak viðgert eftir leka meðfram loftneti 2023/4. 2021 var spólað niður rið á þaki og grunnað yfir með tveggja þátta expoxy grunn og allt þakið ryðvarnargrunnað.
Falleg og mikið endurnýjuð 3-4 herbergja íbúð á afar vinsælum stað í Kópavogi. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/03/201726.700.000 kr.34.800.000 kr.87.5 m2397.714 kr.
10/06/201017.200.000 kr.18.000.000 kr.87.5 m2205.714 kr.
05/10/200918.850.000 kr.21.800.000 kr.87.5 m2249.142 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbær 170
Skoða eignina Hraunbær 170
Hraunbær 170
110 Reykjavík
88.9 m2
Fjölbýlishús
312
730 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 403
Strandgata 26 íb. 403
220 Hafnarfjörður
150.6 m2
Fjölbýlishús
312
1195 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 503
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 503
220 Hafnarfjörður
135.4 m2
Fjölbýlishús
413
1255 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Bústaðavegur 93
Opið hús:05. maí kl 17:30-18:00
Bústaðavegur 93
108 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1040 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin