RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Brimdal 12, fnr. 250-4914Einstaklega vönduð eign og allt sem gert hefur verið er smekklegt og vandað. Húsið er byggt 2020 og er skráð byggingarefni timbur en húsið er klætt með flísum þar sem að útveggjaklæðning hefur ígildi steinhúss. Íbúðarhluti hússins er skráður 143,5 fm og bílskúr 41,5 fm. Lóðin er stór og með góðum sólpalli og tyrfð og er skráð 1.010 fm. Skoðið
þrívíddarmyndatöku hér að neðan til að fara um húsið í tölvunni eða símanum. Einnig gott að sjá skipulag hússins á
teikningu sem er þar sem ljósmyndirnar eru af eigninni.
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Hellulagt að inngangi í húsið og bílaplan með hitalögn.
Forstofa: Stórar flísar á gólfi. Rúmgóður fataskápur sem nær til lofts.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi. Skápur með handlaug og blöndunartæki. Upphengt salerni.
Hol/sjónvarpsrými: Mjög rúmgott með parketi á gólfi.
Aðalbaðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með stórum flísum. Vönduð innrétting með kvartsborðplötu og innfelldri handlaug. Stór inngöngusturta með glerþili og vatnshalla. Baðkar með glerþili. Upphengt salerni. Handklæðaofn.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar. Útgengt á góðan sólpall með skjólveggjum og þar er heitur pottur.
Eldhús: Parket á gólfi. Sérsmíðuð svört innrétting með góðu skápaplássi. Quardssteinn í borðplötum. Breitt spansuðuhelluborð og bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél. Öll tæki í eldhúsi eru frá Whirlpool.
Svefnherbergi: Eru fjögur talsins og er parket á gólfi þeirra allra sem og sérsmíðaðir fataskápar í hverju þeirra.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og góð innrétting þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð. Skolvaskur.
Bílskúr: Epoxy á gólfi. Einstaklega smekklegur og notadrjúgur skúr. Innangegnt úr forstofu í bílskúr. 3 fasa rafmagnstengill. Vaskur og skápar. Sjálvirkur bílskúrshurðaropnari. Útgengt á afgirtan pall úr bílskúrnum.
Lóðin: Afgirt lóð með sökklum og skjólveggjum. Timburpallur um 73 fm sem snýr í suður með heitum potti.
Brimdalur 12 er virkilega vandað og fallegt parhús í rólegri botnlangagötu. Húsið er einstaklega viðhaldslétt. Myndavélakerfi og öryggiskerfi allan hringinn í kringum húsið. Gólfhiti er í húsinu og stilling í hverju rými. Harðparket frá Birgisson er í rýmum þar sem ekki eru flísar. Sérsmíðaðar vandaðar innréttingar eru í húsinu með góðu skápaplássi. Quartssteinn í borðplötum í eldhúsi og baðherbergi. Innfelld lýsing er í húsinu og allt á dimmer. Sérsniðin gluggatjöld í öllum gluggum. Heitur pottur með pottastýringu. Snjóbræðsla í plani með sér innspýtingu. Ekki er nema 20 mínútna akstur frá Hafnarfirði og svo er 10 mínútna keyrsla upp á Keflavíkurflugvöll. Virkilega fallegt hús í rólegu hverfi. Stutt í þjónustu á Fitjum þar sem eru matvöruverslanir og önnur þjónusta. Skóli og leikskóli í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf. í síma
861-7507 eða
daddi@remax.is.Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.