Fasteignaleitin
Opið hús:14. des. kl 13:00-13:30
Skráð 9. des. 2025
Deila eign
Deila

Fornhagi 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
88.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
924.379 kr./m2
Fasteignamat
68.400.000 kr.
Brunabótamat
46.250.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1957
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2028273
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað, jarðtengt og sett ný tafla
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugar eru framkvæmdir á frárennsluslögnum og stamma á baðherbergi - uppfærð húsfélagsyfirlýsing væntanleg, ástandsskýrsla hjá Verksýn í vinnslu. Nánari upplýsingar hjá fasteignasala.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg, björt og töluvert endurnýjuð þriggja herbergja 88,6 fm. íbúð á fjórðu hæð á eftirsóttum stað við Fornhaga 13 í Vesturbænum Reykjavík. Íbúðin sjálf er 79,2 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu með útgengt út á suður svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla 9,4 fm. er staðsett í sameign. 
Þetta er falleg og sjarmerandi eign sem vert er að skoða.

EINSTAKT ÚTSÝNI ER ÚR ÍBÚÐINNI TIL SJÁVAR OG FJALLA. FRÁBÆR STAÐSETNING ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU,  M.A. ER GÖNGUFÆRI Í MELASKÓLA, HAGASKÓLA OG HÁSKÓLA ÍSLANDS, SUNDLAUG VESTURBÆJAR OG MELABÚÐINA. EINNIG ERU FALLEGAR GÖNGU- OG HJÓLALEIÐIR Í NÆSTA NÁGRENNI.


KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

*** ATH. Seljendur skoða einnig skipti á stærri eign í sama hverfi ***

Upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti á netfangið gudrunlilja@remax.is

Nánari lýsing:

Forstofa er með fatahengi og innbyggðum fataskáp.
Eldhús er með fallegum hvítum og stílreinum innréttingum. Úr eldhúsi er gengið út á svalir til suðurs.
Borðstofa og stofa er við eldhús í mjög björtu og opnu rými, einnig útgengt þar út á svalir. Útsýni yfir sameiginlegan garð og til sjávar. Stórir og bjartir gluggar eru í stofu og eldhúsi.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi er mjög rúmgott með innbyggðum fataskápum. Barnaherbergi er minna með litlum innbyggðum skápum. Herbergin eru mjög björt einnig með fallegu útsýni til norðurs.
Baðherbergi er með fallegri hvítri vaskinnréttingu, upphengdu salerni og góðri sturtu. Flísalagt í hólf og gólf. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi.
Sérgeymsla er staðsett í sameign 9,4 fm. ásamt sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Garður er sameiginlegur, vel hirtur og snyrtilegur, m.a. með leiktækjum og matjurtagarði. Garðurinn hefur fengið fjölda viðurkenninga í gegnum tíðina.
Bílastæði sameiginleg, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er á lóð.

Húsið er fallega hannað og vel við haldið, virkt og gott húsfélag.  Upprunalegar innréttingar og hurðar fengið að halda sér að hluta. Stigagangur og sameign hússins öll hin snyrtilegasta. Virk umhverfisvernd er í húsinu sem heldur úti vefsíðunni https://fornhagablokkin.wordpress.com/

2022-2023 voru töluverðar framkvæmdir á vegum húsfélags m.a. gluggaskipti, múr- og þakviðgerðir. Þakjárn endurnýjað og húsið endursteinað. Skipt um glugga og gler að hluta. Einnig innnan íbúðar dregið í nýtt rafmagn, jarðtengt og sett ný rafmagnstafla. 
2019 skipt um hurðir í sameign út í garð og sett upp hleðslustöð á bílastæði.
2017 voru frárennslislagnir hússins fóðraðar.
2015 var drenað við suður og vesturhlið hússins.
2014-2015 var íbúðin töluvert endurnýjuð og breytt, baðherbergi endurnýjað sem og eldhús sem var opnað inn til stofu. Ný gólfefni, fallegt harðparket með furuáferð sett á öll rými fyrir utan baðherbergi sem var flísalagt.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/01/202355.600.000 kr.68.500.000 kr.88.6 m2773.137 kr.
24/03/202044.500.000 kr.45.900.000 kr.88.6 m2518.058 kr.
23/09/201628.450.000 kr.39.500.000 kr.88.6 m2445.823 kr.
30/08/201321.000.000 kr.27.800.000 kr.88.6 m2313.769 kr.
06/02/201321.000.000 kr.20.500.000 kr.88.6 m2231.376 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hagamelur 8
IMG_6961.JPG
Skoða eignina Hagamelur 8
Hagamelur 8
107 Reykjavík
105.7 m2
Fjölbýlishús
413
737 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
77.7 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
78.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
72.9 m2
Fjölbýlishús
211
1084 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
73 m2
Fjölbýlishús
211
1151 þ.kr./m2
84.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin