Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2025

Hólakot

SumarhúsSuðurland/Flúðir-846
167.8 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
327.175 kr./m2
Fasteignamat
63.000.000 kr.
Brunabótamat
86.000.000 kr.
Mynd af Snorri Sigurfinnsson
Snorri Sigurfinnsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2278333
Landnúmer
166923
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegir
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Komið er að viðhaldsvinnu á tréverk utan húss. Sérstaklega sólpalli og skjólveggjum. Brotin ein rúða. Eftir að setja gólfefni á salerni á svefnlofti og einnig vantar tröppu í herbergi.
Gallar
Þegar stórflóð verða í Stóru-Laxá getur flætt inn í kjallara. (kemur upp úr mölinni) Það eru tvær dælur til staðar.
Kvöð / kvaðir
Kvöð um sameiginlegan forkaupsrétt milli eiganda.
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Hólakot A, Hrunamannahreppi. 
Stórt og veglegt sumarhús. Sex herbergja. Skráð 167,8 fm (með kjallara) á eignarlóð,11.979 fm. Skammt frá brúnni yfir Stóru-Laxá. Hitaveita.

Húsið er timburhús klætt með bjálkaklæðningu, á steyptum kjallara. Stallað járn á þaki. Hiti í gólfum með stýrtingum. Stór sólpallur og heitur pottur.
Kjallari er 73,7 fm
Hæð 73,7 fm
Svefnloft 20,4  (er 40 fm að grunnfleti)
Mikið geymslurými undir sólpalli að framanverðu.

Nánari lýsing. Forstofa, baðherbergi með innréttingu og sturtu. Eldhús og stofa í opnu og björtu rými, hurð út á sólpall. Upphafleg innrétting.
Gangur. Á gólfum eru flísar. Þrjú góð svefnherbergi, plastparket á gólfi. Úr forstofu er stigi upp á svefnloft. Tvö stór herbergi, plastparket á gólf. Þakgluggar. Salerni, vantar gólfefni. Mikið geymslupláss undir súð. Húsið er klætt að innan með hvíttuðum panel.
Lofthæð í kjallara er ca 2 m. Möl í gólfi. Þar inni eru inntök, miðstöðvargrind með forhitara og rafmagnstafla, einnig stýring fyrir heitan pott.  Stór vænghurð með gönguhurð.
Heitt og kalt vatn kemur frá veitum Hrunamannahrepps.

Lóðin er að mestu melar en húsið stendur utan í gróinni brekku með töluverðum trjágróðri. 

Ýmis minni viðhaldsverkefni utan húss framundan, aðallega á tréverki. 

Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, ragna@husfasteign.is s. 497-1155

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jötundalur 9-0204
Jötundalur 9-0204
260 Reykjanesbær
63.9 m2
Fjölbýlishús
211
845 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 6I -0203
Dísardalur 6I -0203
260 Reykjanesbær
63.1 m2
Fjölbýlishús
211
856 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 9-0105
Jötundalur 9-0105
260 Reykjanesbær
73.2 m2
Fjölbýlishús
313
799 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Skoða eignina Hólmbergsbraut 13
Hólmbergsbraut 13
230 Reykjanesbær
107.6 m2
Atvinnuhúsn.
418 þ.kr./m2
45.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin