Fasteignaleitin
Opið hús:20. sept. kl 12:30-13:00
Skráð 15. sept. 2026

Ásvallagata 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
62.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.045.089 kr./m2
Brunabótamat
37.850.000 kr.
Byggt 1936
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20041151
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind Löggiltur fasteignasali kynna: Falleg og mjög mikið endurnýjuð 2-3ja herbergja risíbúð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi byggðu árið 1936 við Ásvallagötu 17 í gamla Vesturbænum. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð síðastliðin ár bæði að utan sem innan. Snyrtileg og vel umgengin sameign. Samkvæmt Þjóðskrá er birt flatarmál eignarinnar 62,1 fm en íbúðin er stærri að gólffleti því hún er undir súð að hluta til. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign. 

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu og strax á vinstri hönd er rúmgott rými með þakglugga, að hluta undir súð. Innbyggðar hirslur undir súðinni. Eldhús er opið en afmarkað við borðstofu. Bjart með stórum glugga og góðu útsýni. Snyrtileg ljós innrétting, eldavél með bakarofni. Viðarborðplata.  Stofa og borðstofa eru í björtu og fallegu rými að hluta undir súð og gólfflötur því stærri en uppgefnir fermetrar segja til um, parket á gólfi. Útgengt á skjólgóðar svalir til suðvesturs. Fallegt útsýni. Í núverandi skipulagi er hluti stofu nýttur sem svefnaðstaða. Svefnherbergi er rúmgott með góðum glugga, parket á gólfi. Innbyggður eldri fataskápur. Baðherbergi er nýlega endurgert. Flísalagt gólf og veggir að hluta. Walk-in sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni. Handlaug hvílir ofan á nettri skúffueiningu.Speglaskápur. Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi ásamt því að íbúðinni fylgir sér geymsla í sameign. Frá sameign í kjallara er útgengt út í sameiginlegan reit sem snýr til suðvesturs.  

Viðhald hússins:
2024: Þak yfirfarið og málað.
2023: Hitaþráður lagður í þakrennur.
2021: Loftræstistokkar og vatnslagnir til og frá baðherbergjum allra íbúða endurnýjaðar.
2019: Múrviðgerðir og húsið heilhraunað. Þakrennur endurnýjaðar. Gluggar ýmist alveg endurnýjaðir eða lagfærðir eftir því sem þurfti. Gluggalistar endurnýjaðir og gluggar málaðir. 
2015: Skólplögn endurnýjuð undir botnplötu hússins út í götu.
2011: Svalir byggðar við allar íbúðir hússins garðmegin.
2008: Fráveitulögn endurnýjuð úr öllum íbúðum.

Viðhald íbúðar:
2019: Gluggi í svefnherbergi endurnýjaður ( aðrir gluggar endurnýjaðir nokkrum árum áður, nema þakgluggi )
2021: Baðherbergi endurnýjað. Íbúðin öll parketlögð með harðparketi.

Hér er um að ræða fallega og töluvert endurnýjaða íbúð á eftirsóttum stað við Ásvallagötuna þar sem stutt er í alla helstu þjónustu m.a skóla, verslanir, kaffihús, sundlaug o.fl.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallgerðargata 5 (305)
Hallgerðargata 5 (305)
105 Reykjavík
63.4 m2
Fjölbýlishús
211
1103 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Grenimelur 15
Skoða eignina Grenimelur 15
Grenimelur 15
107 Reykjavík
60.4 m2
Fjölbýlishús
211
992 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkustígur 8
Skoða eignina Brekkustígur 8
Brekkustígur 8
101 Reykjavík
74.6 m2
Fjölbýlishús
211
838 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Leifsgata 13
Kjallaraíbúð
Skoða eignina Leifsgata 13
Leifsgata 13
101 Reykjavík
44.1 m2
Fjölbýlishús
211
950 þ.kr./m2
41.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin