** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 122,2 m2, 4-5 herbergja sérbýli á tveimur hæðum við Akurgerði 5, 108 Reykjavík. Frábært fjölskylduhús. Fallegur afgirtur skjólgóður bakgarður með geymsluskúr og stórri timburverönd (um 50 m2) í suðurátt, þar sem sólar nýtur frá morgni til kvöld. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er fyrir frama húsið. Eignin skiptist í: Neðri hæð: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa. Milligang. Bílskúr sem skiptist í herbergi og geymslu/þvottahús. Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, geymsla og baðherbergi. Eignin er skráð 122,2 m2, þar af íbúðarrými 102,7 m2 og bílskúr 19,5m2.
Frábær staðsetning á rólegum stað, þar sem er stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslanir og alla helstu þjónustu.Framkvæmdir samkvæmt upplýsingum frá seljanda: Árið 2013-2014 var sett nýtt frárennsli frá húsum í botnlanga út í götu, nýir brunnar, malbik á botnlanga. Árið 2014 var baðherbergi endurnýjað. Lögn fóðruð út í brunn (proline). Árið 2016-2017 var þak endurnýjað (nýtt aluzink, pappi, klæðning, viðgerðir á stoðum, nýjar flasningar og rennur). Nýtt eldhús og gólfefni í eigninni. Ný svalahurð á jarðhæð sett. Geymsluskúr settur í garð. Árið 2016 og 2018 voru pallar byggðir. Árið 2019 var þak á bílskúr endurnýjað (nýtt aluzink, pappi, klæðning, flasningar) og sett plexigler yfir milligang (á milli hússins og bílskúrsins). Árið 2020 var sett klæðning á framhlið bílskúrs. Árið 2021 klæðning á loftið í bílskúr. Árið 2022 var sett þak á inngang. Árið 2024 voru gluggar yfirfarnir í herbergjum uppi, baði og eldhúsi út að bílastæði. Árið 2025 var gerður skjólveggur og pallur við Akurgerði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing: Forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi.
Hol er með parketi á gólfi.
Stofan og borðstofa eru í björtu rými með parketi á gólfi. Gengið er úr rýminu út á timburverönd í bakgarði.
Eldhús er í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Falleg hvít eldhúsinnrétting frá Kvik með extra djúpum skúffum og góðu geymsluplássi. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, ofn, helluborð og háfur.
Milligangur á milli bílskúrs og íbúðarhússins er með flísum á gólfi. Er ekki í fermeratölu eignarinnar, var útisvæði sem búið er að byggja yfir með plexígleri og loka.
Bílskúr er í dag nýttur sem
herbergi og
geymsla/þvottahús.
Stigi upp á efri hæðina
og gangur efri hæðar eru með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Geymsla er á gangi.
Baðherbergi er flísalagt, með vegghengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og handlaug. Gluggi er á baðherbergi.
Verð. kr. 123.900.000,-