Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð og björt 79,9 fm. tveggja herbergja íbúð á 3. hæð á eftirsóttum stað við Norðurbrú 5, 210 Garðabæ í vönduðu lyftuhúsi með svalir sem snúa vel á móti sól í suður. Stæði í bílageymslu (B21) fylgir með íbúðinni.
Birt stærð eignar er 79.9 fm samkvæmt HMS, þar af er 7,2 fm geymsla. Fasteignamat eignar er kr. 74.500.000,-
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isNánari lýsing á eigninni: Þegar komið er inn í forstofu með fataskápum sem er opin og blasir við rúmgóð, falleg, björt stofa með stórum gluggum, með útgengi út á svalir sem snúa til suður. Eldhúsið er hálf opið með borðkróki. Eldhúsið er hannað sitt hvoru megin við umferðarrýmið inn í eldhúsi með fallegri dökkri innréttingu. Í eldhúsi er opinn borðkrókur inn í stofu. Svefnherbergið er mjög rúmgott og með góðum skápum. Baðherbergið er með baðkari og upphengdri sturtu. Á baði er góð snyrtiaðstaða, skápur undir handlaug, skápur og spegill fyrir ofan handlaug. Á baði er líka aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Húsgjöld eignar eru 26919- kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging, framkvæmdasjóður og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags. Sjá yfirlýsingu húsfélags og fundargerð aðalfundar 2026 um fyrirhugaðar framkvæmdir.
Húsið er byggt af BYGG árið 2004, steinsteypt hús með bílastæði í sameignilegum bílakjallara og fyrir framan hús og sameignileg lóð mjög snyrtileg. Sameign hússins er björt og snyrtileg. Húsið er á lóð með húsunum Strandvegur 12-14-16 og Norðurbrú 1. Einnig Strandvegur 18-20 og Norðurbrú 3-5. Strandvegur 18-20, Norðurbrú 3-5 eru fjórir sambyggðir þriggja hæða stigagangar með kjallara samtals 37 íbúðir. Í kjallaranum er auk þess 32 stæði í bílageymsla.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.