Fasteignaleitin
Skráð 24. feb. 2026

Kópavogsbraut 85

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
75.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.600.000 kr.
Fermetraverð
911.023 kr./m2
Fasteignamat
59.600.000 kr.
Brunabótamat
43.750.000 kr.
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2063595
Landnúmer
115325
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
upprunalegar í íbúð -endurnýjun væntanleg
Raflagnir
Endurnýjaðar í íbúð
Frárennslislagnir
Upprunalegar- fóðrun væntanleg
Gluggar / Gler
Stofugluggi endurnýjaður, sjá skýrslu
Þak
Endurnýjuð klæðning 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar skv. fundarboði á aðalfund sem verður 15. mars skv. fundarboði. 
Það er vitað að það styttist í endurnýjun neysluvatnslagna og gluggaskipti á næstu árum. Jafnframt er farið að styttast í endurnýjun frárennslislagna. sjá ástandsskýrslur hjá fasteignasölum. 
Það stóð til í að fara í neysluvatnslagnir en því hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna: Kópavogsbraut 85, 200 Kópavogi.
Mjög mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efri hæð (2. Hæð) í 6 íbúða húsi með óhindruðu sjávarútsýni. Virkt starfandi húsfélag er í húsinu og er í umsjón hjá Eignarekstri.
Uppgefin heildarstærð eignar er 75,3 fm en auk þess er geymsla í kjallara sem er með 7 fm gólffleti að innanmáli, að stærstum hluta með fullri lofthæð, en að hluta undir stiga.
Heildarstærð eignar er því í raun ca 82 fm. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. 


     >> SÆKTU SJÁLFVIRKT SÖLUYFIRLIT HÉR<<

     >> SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ EÐA ÁN HÚSGAGNA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR<<

Skipulag séreignar: Forstofa, gangur, eldhús, stofa/borðstofa, 2 herbergi, suðursvalir, baðherbergi og þvottaherbergi. Í kjallara er geymsla.

Nánari lýsing:
Harðparket er á allri íbúðinni utan baðherbergis sem er með flísum og málað gólf á þvottaherbergi. Hvítlakkaðar innihurðar.
Forstofa: Eikar eldvarnarhurð er inn í íbúðina.

Gangur / hol: Tengir saman öll rými eignarinnar. Tvöfaldur skápur hólf í gólf á gangi.
Stofa / borðstofa: Mjög björt stofa með stórum endurnýjuðum glugga með fallegu sjávarútsýni í átt að Arnarnesinu. Útgengi er á rúmgóðar suðursvalir frá stofu, einnig er útgengt úr herbergi 1. Strimlagluggatjöld.
Eldhús: Er endurnýjað. Hvít U-laga innrétting úr Ikea með viðarborðplötu og vegghillum. Ísskápur er innbyggður sem og uppþvottavél. Bakaraofn með stálframhlið í vinnuhæð sem og combi ofn. Span helluborð og hvítur lofthengdur eyjuháfur (eitt gler í ljósi háfs er brotið). Setuaðstaða við enda eldhúsinnréttingarinnar. Eldhúsið er bjart með tveimur gluggum og er vaskurinn við annan gluggann. Strimlagluggatjöld.
Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum undir handlaug og viðarborðplötu. Hár veggengdur skápur með hurðum og opnum hillum. Stór veggspegill. Hvítur handklæðaofn, baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á votsvæði baðherbergis, annars lakkaðir veggir. Nýleg salernisskál. Opnanlegur gluggi. 
Herbergi I: Rúmgott og bjart með hvítum fataskáp hólf í gólf eftir einum vegg. Gluggi og útgengi út á svalirnar. Myrkrarúllugardínur fyrir glugga og svalahurð.
Herbergi II: rúmgott með stórum glugga. Myrkrarúllugardína.
Þvottahús / búr: Er inn af eldhúsi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata sem býður upp á gott vinnupláss.
Sérgeymsla: Staðsett í kjallara: Rúmgóð með hillum. Geymslan teygir sig undir stigann svo hún er stærri en ella. Gluggi. Er utan fermetratölu. 
Sameign: Sameiginlegur inngangur er í snyrtilegt stigahús sem er með tveimur hæðum og kjallara. 2 íbúðir eru á hæð.
Hjólageymsla er aðgengileg um sérhurð á utanverðu húsinu.
Sérmerkt bílastæði fyrir hverja íbúð á lóð auk þess sem 2 gestastæði eru til staðar.

Framkvæmdasaga síðustu árin:
2020: Íbúðin var endurnýjuð að mjög miklu leyti, Harðparket á allri íbúð endurnýjað, nýeldhúsinnrétting, lagnir að vegg og tæki í eldhúsi, skápahurðar, nýtt rafmagn dregið í íbúð og tenglar/innstungur endurnýjað.
2018: Gluggi í stofu endurnýjaður. Hús múrviðgert og hús/gluggar málaðir að því loknu.
xxxx: Þakklæðning endurnýjuð (skv. upplýsingum í ástandsskýrslu um húsið.

Aðalfundur húsfélags verður haldinn 15. mars, en einnig er húsfundur 25. febrúar þannig að nánari upplýsingar um niðurstöðu fundar mun liggja fyrir á sýningardegi.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og í netfanginu gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og i netfanginu gylfi@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/10/202035.700.000 kr.43.900.000 kr.75.3 m2583.001 kr.
07/02/201725.100.000 kr.36.500.000 kr.75.3 m2484.727 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignanúmer
F2063595
Byggingarefni
Steypa
Lýsing
Geymsla í kjallara fylgir eigninni, hún er um 4 fm + drjúgt geymslupláss undir stiganum þar sem myndi ekki mælast vegna lofthæðar. 

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin